Morgunblaðið - 29.05.2008, Side 11

Morgunblaðið - 29.05.2008, Side 11
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. MAÍ 2008 11 FRÉTTIR Á FYRSTA fundi nýrrar stjórnar Varmársamtakanna í Mosfellsbæ í fyrradag var embættum skipað þannig að Gunnlaugur B. Ólafsson, fyrrverandi varaformaður, var kos- inn formaður samtakanna, Sigrún Pálsdóttir, fyrrverandi gjaldkeri, var kosin varaformaður. Kolfinna Baldvinsdóttir er nýr ritari, Ólafur Ragnarsson var kosinn gjaldkeri og Páll Kristjánsson meðstjórnandi. Kristín Pálsdóttir og Marta Guð- jónsdóttir eru varamenn. Aðeins Gunnlaugur og Sigrún hafa áður setið í stjórninni en þau hafa verið í stjórn samtakanna frá stofnun þeirra árið 2006. Leiðir Varm- ársamtökin SÍMASKRÁIN 2008 er komin út, myndskreytt af Hugleiki Dagssyni. Skráin hefur tekið nokkrum breytingum frá síðasta ári. Meðal annars hefur landsbyggðarhlut- unum, sem eru sjö talsins, verið breytt þannig að nú er nöfnum í hverjum landshluta raðað í staf- rófsröð, rétt eins og gert er á höf- uðborgarsvæðinu. Hugleikur hefur ekki einungis teiknað forsíðumyndina heldur hef- ur hann einnig teiknað myndasögu sem nær yfir megnið af skránni. Símaskráin er umhverfisvæn og pappírinn sem í hana er notaður kemur úr sjálfbærum skógum. Símaskráin er nú prentuð í 200.000 eintaka upplagi og er 1.644 blað- síður. Hvert eintak vegur um tvö kíló. Ritstjóri Símaskrárinnar er Guð- rún María Guðmundsdóttir. Morgunblaðið/Ásdís Myndskreytt símaskrá BJÖRN Bjarnarson, dóms- og kirkjumálaráðherra, hefur sett Hauk Guðmundsson, skrif- stofustjóra í dóms- og kirkju- málaráðuneytinu, í embætti for- stjóra Útlendingastofnunar á meðan á fæðingarorlofi Hildar Dungal, skipaðs forstjóra, stendur, þ.e. frá 1. júní 2008 til 31. maí 2009. Kristrún Kristinsdóttir, sem verið hefur skrifstofustjóri í ráðuneytinu með aðsetur í Brussel mun leysa Hauk af í starfi skrifstofustjóra einkamála- og borgarskrifstofu. Nýr forstjóri til bráðabirgða KAFFIMEÐLÆTIÐ verður með nokkuð óvenjulegum hætti á kaffi- húsinu Hljómalind við Laugaveg á morgun, föstudag, kl. 16-18. Þá munu dansarar gefa fólki kost á því að kaupa dans með kaffinu. Upp- boðshaldari verður á staðnum og verður hægt að bjóða í stutt dans- atriði af ýmsum toga. Allir ættu að geta fundið dans við sitt hæfi. Það er Reykjavík Dance Festival sem stendur fyrir kaffidansinum. Reykjavík Dance Festival var fyrst haldið árið 2002 og hefur frá upp- hafi verið hvati að sköpun nýrra ís- lenskra dansverka. Framtíð hátíð- arinnar er nú í óvissu þar sem fjárstyrkur við hátíðina hefur verið óöruggur síðastliðin ár, segir í til- kynningu. Dans með kaffinu STUTT HINN árlega álfasala SÁÁ fer nú fram í 19. sinn og var það Jóhanna Sigurðardóttir félagsmálaráðherra sem keypti fyrsta álfinn. Álfasalan er til styrktar unglinga- deildinni á sjúkrahúsinu Vogi þar sem milli 200 og 300 unglingar koma árlega í vímuefnameðferð. Vímuefnaneysla unglinga varðar landsmenn alla. Það er dýrmætt fyrir þjóðfélagið í heild sinni ef tekst að koma í veg fyrir að þessi hópur sem leitar til unglinadeild- arinnar nær að hætta vímu- efnaneyslu og halda áfram að mennta sig og verða virkir þátttak- endur á vinnumarkaði. Undir því er lífshamingja þeirra komin og allra þeirra nánustu. SÁÁ leggur áherslu á að vinna heildstætt með fjöl- skyldum ungmennanna og veita for- eldrum þeirra fræðslu og stuðning, segir í fréttatilkynningu. Unglingadeildin á Vogi var tekin í notkun snemma árs 2000. Með til- komu deildarinnar var þjónusta við vímuefnaneytendur á aldrinum14-19 ára stóraukin og bætt. Til að berjast við vímuefnavandan með áhrifaríkum hætti er leitað eft- ir stuðningi frá almenningi um leið og athygli er vakin á starfinu. Álfasala SÁÁ hafin til styrktar ungum fíklum Morgunblaðið/Frikki Gott málefni Álfurinn sómir sér vel á vinstri öxl Jóhönnu Sigurðardóttur. vinbudin.is E N N E M M / S ÍA / N M 33 16 1

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.