Skinfaxi

Volume

Skinfaxi - 01.10.1934, Page 7

Skinfaxi - 01.10.1934, Page 7
SKINFAXL 87 fjörlega atvinnugrein, sveitapiltarnir voru álitnir herðalotin dusilmenni, og „sveitamaður“ varð skamm- aryrði*). Húsgögn bændanna og búsáhöld, sagnir þeirra og söngvar, var flutt i söfnin. Allt átti að verða nýtt og tízkunni samkvæmt. Brátt reis það upp sem lífsköllun fyrir sveitaung- menni nútímans, að befja landbúnað og sveitalíf í æðra veldi. Með dugnaði einstaklingsins og samvinnu fjöld- ans viija unglingarnir gera sitt til styrktar og hagsbóta atvinnuveginum, sem þeir liafa erft af feðrum sínum. Með lotningarfullri rannsókn hinnar gömlu sveitamenn- ingar og með bagnýtingu dýrmætra menningarverð- mæta nútímans vill sveitaæska líðandi ára reisa menn- ingarbyggingu framtíðarinnar sterka frá grunni og sniðna jafnframt eftir kröfum tímans. Að þessu tak- marki vinnur „Jordbrukarungdomens förbund“ (J. U. F.) í Sviþjóð, „Noregs ungdomslag“ i Noregi, ýmsar æskulýðslireyfingar í Danmörku og Finnlandi, og um- fram alll bin framannefnda, raunhæfa æskulýðsstarf- semi, sem komin er frá Ameriku.**) Unglingurinn er settur, eða, við skulum viðurkenna það undireins, hann kemur sér fyrir sjálfur inni í sjálfu lifandi lífinu sem leiguliði á dálitlum landlietti. Nú er um að gera að koma dálillu stofnfé skynsamlega fyrir í fyrirtækinu sínu: landleigu, útsæði, áburði og vinnukostnaði — já, svo skynsamlega og með svo mik- illi þekkingu, að hagnaðurinn verði góður. Ungmenna- ráðunauturinn — en J. U. F. hefir þá fastráðna í mörg- um héruðum -— gefur honum ráð og leiðbeiningar, svo að allt, sem hann gerir, stefni að réttu marki. Allt, sem *) Sbr. „sveitó'1 í Reykjavík! — Þýð. **) Hér á landi vinnur IJ. M. F. í. að þessu marki. En deyfð félagsdeildanna bendir á, að íslenzkri sveitaæsku sé það ckki meira en svo ljóst, Enda erum vér cnn ekki lengra komnir en svo, að áhöfn islenzka landbúnaðarskipsins er nú sem óðasl að „Útra i bátana“. — Þýð.

x

Skinfaxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.