Skinfaxi - 01.10.1934, Síða 40
120
SKINFAXl
ger“ o. s. frv. — Bókin hans lætur ekki mikið, yfir sér,
en eg hygg, að hún og liöfundurinn cignist marga vini
og aðdáendur.
G. M. M.
Lausavísur.
Sex liagyrðingar sendu Skinfaxa vísur lil samkeppni uiii
verðlaun þau, er heitið var í síðasta hefti. 1. verðlaun voru
dæind höfundi, sem nefndist Leifur í Lyngbrekku, og reynd-
ist að vera Þórður Jónsson í Brekknakoti í Suður-Þingeyjar-
sýslu. 2. verðlaun hlaut Dagrauma-Sveinn, Þingeyingur, en
hann liefir ekki leyft að birta hið rétta nafn sitt. Um vís-
urnar dæmdu: Margrét Jónsdóttir skáldkona, Ríkarður Jóns-
son myndhöggvari og ritstjóri Slcinfaxa. — Hér birtast vísur
þær, er sendar voru til samkeppninnar.
Vísur Þórðar Jónssonar:
Morgunvísa.
Fletti ]>oku allri af
austurfjöllum gola hlý;
þeim í staðinn glóéyg gaf
geislaklæði hrein og ný.
U m s t ú 1 k u.
Gleðifundi fer hún á,
fönn þótt stundum þreyti.
Brúnum undan ýmsir fá
ástar tundurskeyti.
Hringhenda.
Geislumsnalla sumarsól
syrgði fjalla veldi.
Rætur allar áttu skjól
undir mjallarfeldi.
.1 ö k 1 a s ý n.
Glæst af sól hún glampar öll,
— gerir hug minn ungan —
fjarst við há og heiðblá fjöll,
hvítskær jökulbungan.