Skinfaxi

Årgang

Skinfaxi - 01.12.1944, Side 5

Skinfaxi - 01.12.1944, Side 5
SKINFAXI 77 ir liöfði, en þá má ekkert félag slandast, ef ekki er slak- að til á ýmsar hendur sanngjarnlega.“ Margt gætum vér lært af tali Jóns Sigurðssonar um frelsið. Ilann líkir baráttunni fyrir frelsinu við uppeld- isslarf. Ilann vill, að þjóðin sé alin upp, til þess að taka á móti frelsinu. Frelsið á ekki að vera í fylkingarbrjósti, þannig að stjórnsemi og regla komi á eftir. „Með lögum skal land byggja, en ólögum eyða. Leitizt við sem rnest, hver í sinn stað, að útbreiða og festa meðal yðar þjóð- legt samheldi, þjóðlega skynsemi og þjóðlega reglu.“ Það verður alltaf aðdáunarefni, hvernig Jón Sigurðsson barðizt. Eiríkur Briem segir, að hann hafi sjaldan á- mælt einstökum mönnum í orðum eða ritum. Sjálfur segir hann: „Það er enginn skaði þótt meiningamunur sé, heldur getur orðið skaði að, hvernig meiningunum er fylgt. Þegar menn hafa einungis fyrir augum að koma fram sinu máli með hverjum þeim brögðum, sem verða má og niða alla, sem móti mæla bæði leynt og ljóst —■ — bá má verða, að sá hafi sitl mál fram, sem ver gegnir og hrekkvísastur er eða illindastur.“ Þorsteinn spyr: „Mun ei bjart um hann Jón?“ Yæri ekki þörf þeirrar birtu inn i íslenzkt þjóðlíf? Þjóðhá- tíðardagur vor nú og í framtíðinni á að gera bjartara yfir fslandi, láta heiðríkjuna af svip forsetans skína inn í hugina. Jón Sigurðsson spyr oss í dag: Hversu er um þroska yðar að taka á móti frelsinu? Hvernig er um samheldni yðar og skipulegt samstarf að taka á móti erfiðleikum líðandi stundar? Er flokkaskiptingin i landinu byggð á heilbrigðum skoðanamun eða ráða þar eigingjarnar hvatir? Nú á aldarafmæli þingmennsku minnar, er Al- þingi, sem eg veitli forstöðu virðuleg samkoma? Eruð þér einhuga um forsetann? Höldum þjóðhátíð í anda Jóns Sigurðssonar og með hverju árinu sem líður verða svör vor jákvæðari við spurningum hans.

x

Skinfaxi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.