Skinfaxi - 01.12.1944, Blaðsíða 46
118
SKINFAXI
Bolurinn er aðeins álútur með misjafnlega miklum hnébeygj-
um. Allir vöðvar líkamans mjúkir. Staðið jafnt í báða fætur.
Allur fóturinn í jörðu.
Undir eins og kastarinn Iiefur tekið sér upphafsstöðu og grip-
ið kringluna, hefur liann undirbúningssveiflurnar. 1 undirbún-
ingssveiflunum mú styðja vlð kringluna með vinstri hendi.
III. Undirbúningssveiflurnar. (9: mynd A).
Venjulega sveiflar kastarinn kringlunni fram fyrir sig og
aftur fyrir þrisvar sinnum, til þess að fullvissa sig um öruggt
grip, ná öruggu jafnvægi, fá meiri hraða i snúninginn og ná
kringlunni sem fjarst bolnum — sem lengst að baki honum.
Sveiflurnar eru framkvæmdar með mýkt. Meðan á sveiflunum
stendur færist líkamsþunginn ýmist af vinstra á hægra fót og
öfugt. Um leið og kringlan kemst i öftustu seilingsstöðu i
seinustu sveiflunni, liefst vinstra fótar snúningurinn.
IV. Vinstra fótar snúningurinn. (9. mynd B og C).
Þegar kringlan í síðustu undirbúningssveiflunni hefur náð
fjarlægasta punkti brautar sinnar að baki kástarans, hvílir
líkamsþunginn á hægra fæti, en tyllt í jörð með tábergi vinstra
fótar. Vinslri armur er venjulega teygður og fylgir sveiflum
þess Iiægri. Hnén eru bogin. Þegar byrja skyldi að sveifla
kringlunni fram, er bolnum snúið snöggt til vinslri og lík-
amsþunginn færður á vinstra fót. í þessari stöðu snýr kast-
arinn sér í hálfhring á tábergi vinstra fótar. Staða fótanna er
að lokinni hálfsveiflunni sýnd á 9. mynd D.