Skinfaxi - 01.12.1944, Blaðsíða 36
108
SKINFAXl
andi? Og mætíi þannig lengi telja. VerÖur nú vikið að ein-
stökum félögum.
Umf. Drengur í Kjós tetur nú 138 fétagsmenn og er fjöl-
mennasta félagið utan Reykjavíkur. Gefur út handritað blað,
sem nefnist „Hreiðar heimski“. Komu út af því 5 tbl. á árinu.
Umf. Reykdæla í Borgarfirði hóf skógrækt á 2ja lia. landi.
Tilefnið var gjöf kr. 2000,00, til minningar um látinn ungmenna-
félaga, Gunnlaug Briem Einarsson, er gefin var af systkinum
hans. Mest af landinu gaf Magnús Jakobsson bóndi á Snældu-
beinsstöðum. Bókasafn félagsins telur nú 820 bindi og eru not-
endur þess 80.
Umf. Snæfell í Stykkishólmi vann að vegagerð á fyrirhug-
aðan íþróttavöll. Starfar í flokkum sem áður. T. d. málfunda-
flokkur, saumafl. kvenna og skákfl. Árleg keppni er um skák-
bikar. Þátttakendur 13. Gufubaðstofa félagsins fullgerð.
Umf. Flateyjar, Flatey á Breiðafirði, liéll kvöldvökur i viku-
tíma (21.—26. marz) Var öllum velkomið að sækja þær.
Umf. Bifröst og Umf. Önundur í Önundarfirði héldu ágóða-
samkomu fyrir Héraðsskólann á Núpi. Ágóði kr. 745,00. Mynd-
arleg ræktasemi við héraðsskóla sinn.
Umf Grettir í Miðfirði hefir lokið við sundlaugarbyggingu i
Ásbyrgi, sem er hið myndarlegasta mannvirki.
Umf. Staðarhrepps í Skagafirði hefir lokið við samkomuhús-
byggingu.
Umf. Þorsteinn Svörfuður Svarfaðardal lék sjónleikinn Al-
mannarómur eftir Stein Sigurðsson. Ilélt námskeið i fata-
saumi. Kennari Ingibjörg Jóhannsdóttir. Nemendur 18.. Barna-
deild starfar með 18 félögum.
Umf. Dagsbrún Höfðahverfi vinnur að íþróttavallarbyggingu.
Á spunavél og sér úm rekstur liennar. Vinnur að slcógrækt.
Umf. Æskan á Svalbarðsströnd hélt saumanámskeið. Kenn-
ari Sigríður Halldórsdóttir. Barnadeild slarfar innan félagsins.
Umf. Glæðir í Fnjóskadal vinnur að undirbi'iningi sundlaug-
arbyggingar. Blað félagsins „Nýjar raddir“, kom fjórum sinn-
um út.
Umf. Einherjar Vopnafirði lék sjónleikinn Karlinn í kass-
anum. Vinnur að iþróttavelli.
Umf. Hróar í Ilróarstungu vinnur að húsbyggingu.
Umf. Fram Hjaltastaðaþinghá vinnur að íþrótlavelli og liús-
byggingu.
Umf. Austri á Eskifirði rekur námsflokka með góðum
árangri. Þátttakendur um 30. Barnadeild starfar í félaginu
fyrir börn 12—14 ára. Kennarar barnaskólans leiðbeina.