Skinfaxi - 01.12.1944, Blaðsíða 71
SKINFAXI
143
Ilelzta áhugamál skólans er bygging á vönduðu fimleikahúsi.
Er undirbúningur hafinn lil þess að reisa það á nœstu árum til
minningar um hinn ástsæla skólafrömuð þeirra Færeyinga,
Simun av Skarði. Ilafa þegar safnast kr. 10.000.00 til bygging-
arinnar. Vafalaust verður enn safnað miklu fé, þar til fram-
kvæmdir hefjast.
Ititgerðir eftir Guðmund Davíðsson áður umsjónarmann á
Þingvöllum. Bók þessi, sem er 7 arkir að stærð, skiptist i 0
kafla, sem heita: Ánamaðkurinn í þágu menningarinnar —
Vörn veiðibjöllunnar — Náttúruspell — Náttúran, trúarbrögð-
in og kirkjan — Um lagaboð — Veiðiböl. Allar ritgerðirnar
bera með sér ást og virðingu fyrir liinu fjölbreytta lífi, sem
þróast á hinum ýmsu stigum i riki náttúrunnar. Ritgerðirnar
eru ágætlega skrifaðar. Margar skemmtilegar en þó umfram allt
hollur og þroskandi lestur.
Seiðurinn mikli er rit um bindindismál, er Pétur Sigurðs-
son hefur tekið saman. Leiðir hann þar fram 50 höfunda, lækna,
uppeldsfrömuði, löggæzlmenn, bæði erlenda og innlenda, er
allir kveða upp dóm um þann háska, sem einstaklingum og
þjóðum stafar af hinni taumlausu áfengisneyslu. Margar myndir
prýða bókina, sem er 72 bls. að stærð. Bók þessi er stór fróð-
leg og athyglisverð og æltu sem flestir að kynna sér efni henn-
ar vandlega.
Hlín, ársrit íslenzkra kvenna 27. árg. flytur að vanda margar
greinar, sem erindi eiga til allra, þótt einkum séu þar rædd
áhugamál kvenna. Þar birtast fréttir af fundum lcvenna, nám-
skeiðum kvenfélaga og öðrum störfum þeirra, eftirmæli, ýms-
ar ræður og rilgerðir. Ritið er 144 bls. og gefið út á Akureyri.
Ritstjóri er Halldóra Bjarnadóttir.
Árbók Sjómanna- og gestaheimilis Siglufjarðar 1943, gefur
yfirlit um starfsemina í einstökum atriðum. Aðsókn að heimil-
inu hefur aldrei verið meiri frá því að það tók til starfa eða
alls 6080 gestir yfir starfstímann. Stjórn heimilisíns rómar
prúðmannlega umgengni gestanna. D. Á.