Skinfaxi

Volume

Skinfaxi - 01.12.1944, Page 71

Skinfaxi - 01.12.1944, Page 71
SKINFAXI 143 Ilelzta áhugamál skólans er bygging á vönduðu fimleikahúsi. Er undirbúningur hafinn lil þess að reisa það á nœstu árum til minningar um hinn ástsæla skólafrömuð þeirra Færeyinga, Simun av Skarði. Ilafa þegar safnast kr. 10.000.00 til bygging- arinnar. Vafalaust verður enn safnað miklu fé, þar til fram- kvæmdir hefjast. Ititgerðir eftir Guðmund Davíðsson áður umsjónarmann á Þingvöllum. Bók þessi, sem er 7 arkir að stærð, skiptist i 0 kafla, sem heita: Ánamaðkurinn í þágu menningarinnar — Vörn veiðibjöllunnar — Náttúruspell — Náttúran, trúarbrögð- in og kirkjan — Um lagaboð — Veiðiböl. Allar ritgerðirnar bera með sér ást og virðingu fyrir liinu fjölbreytta lífi, sem þróast á hinum ýmsu stigum i riki náttúrunnar. Ritgerðirnar eru ágætlega skrifaðar. Margar skemmtilegar en þó umfram allt hollur og þroskandi lestur. Seiðurinn mikli er rit um bindindismál, er Pétur Sigurðs- son hefur tekið saman. Leiðir hann þar fram 50 höfunda, lækna, uppeldsfrömuði, löggæzlmenn, bæði erlenda og innlenda, er allir kveða upp dóm um þann háska, sem einstaklingum og þjóðum stafar af hinni taumlausu áfengisneyslu. Margar myndir prýða bókina, sem er 72 bls. að stærð. Bók þessi er stór fróð- leg og athyglisverð og æltu sem flestir að kynna sér efni henn- ar vandlega. Hlín, ársrit íslenzkra kvenna 27. árg. flytur að vanda margar greinar, sem erindi eiga til allra, þótt einkum séu þar rædd áhugamál kvenna. Þar birtast fréttir af fundum lcvenna, nám- skeiðum kvenfélaga og öðrum störfum þeirra, eftirmæli, ýms- ar ræður og rilgerðir. Ritið er 144 bls. og gefið út á Akureyri. Ritstjóri er Halldóra Bjarnadóttir. Árbók Sjómanna- og gestaheimilis Siglufjarðar 1943, gefur yfirlit um starfsemina í einstökum atriðum. Aðsókn að heimil- inu hefur aldrei verið meiri frá því að það tók til starfa eða alls 6080 gestir yfir starfstímann. Stjórn heimilisíns rómar prúðmannlega umgengni gestanna. D. Á.

x

Skinfaxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.