Skinfaxi - 01.12.1944, Blaðsíða 10
82
SKINFAXI
alla landsfjórðunga. Flutti erindi á mannfundum, skil-
aði kveðjum og fræddi menn um hagi íslendinga vestra
af miklum kunnugleik. Slíkur maður er að vonum hinn
mesti aufúsugestur, því svo sterkar rætur eiga Yestur-
íslendingar enn hér heima.
UngmennafélÖgin eru honum einkum þakklát. Hann
er ævifélagi þeirra og jafnan sýnt Skinfaxa mikla
ræktarsemi. Á ferðum sínum gerði hann sér far um
að sækja héraðsmót Umf. eftir því sem við var komið.
ITann sótti héraðsmót Ungmennasambands Borgar-
íjarðar 2. júlí, samkomur Umf. Auslra á Eskifirði og
Umf. Vals á Reyðarfirði og héraðsmót Umf. i Hrepp-
unum að Álfaskeiði 22. júlí. Þá tók sambandsstjóri U.
M. F. í. sérstaklega á móti honum á samkomu í Núps-
skóla, sem haldin var af Umf. og fleirum í tilefni af
komu lians til Vestfjarða. Mörg önnur héraðssambönd
höfðu óskað eflir því, að hann yrði gestur á héraðsmót-
um þeirra, en þess var enginn kostur, eins og ferða-
áætlun hans var liáttað.
Ungmennanfélag Islands iætur nú gera kertastjaka,
sem það ætlar að gefa Þjóðræknisfélaginu, sem litinn
vináttuvott til minningar um lcomu forseta þess hingað
á s. 1. sumri. Hann á að tákna það ljós, sem Umf. óslca
eftir að ævinlega verði tendrað á milli íslendinga aust-
an hafs og vestan. Umf. standa þjóðernismálin nærri
hjarta og það er þeim gleðiefni, eins og raunar allri
þjóðinni, hve íslendingum í Vesturheimi hefir tekist að
varðveita þjóðerni sitt og að það skuli vera stolt þeirra
og vegsauki að vera íslendingar. Enginn fær metið
hvers virði það er að eiga 30 þús. samlanda í Ameriku,
sem varðveita þjóðareinkenni sín meðal hinna ensku-
mælandi milljóna. Baráttan fyrir þjóðernismálunum
verðskulda alþjóðar þökk. Er þar margra góðra manna
að minnast, sem haft hafa forustuna hver fram af öðr-
um og nú síðast hinn ágæti gestur, prófessor Beck.
Hann er öðrum frernur væringi þessa tífna. Ungur