Skinfaxi

Volume

Skinfaxi - 01.12.1944, Page 31

Skinfaxi - 01.12.1944, Page 31
SKINFAXI 103 komum hcfðu einhverjir verið reykjandi eins og viða við- gengst, — því miður. Auðvitað hefðu jicir, sem reyktu, alltaf verið að bjóða hinum og látið þá finna, að það væri ætlast lil þess, að þeir tækju við. Hér er mikið millibil. En jafnvel þó að fundir okkar og samkomur hefðu verið hreinar og tó- bakslausar, eins og þær hafa verið, þá er það vist, að hið per- sónulega bindindisheit flokksins hefir forðað ýmsum okkar frá því að þiggja fyrsta vindlinginn og síðan hvern af öðrum. Hvað er unnið við það að vera bindindismaður á tóbak? Það má svo sem segja, að ]iað skemmi mann litið þó að hann endrum og eins þiggi tóbaksvindling, — t. d. „einn á 10 ára fresti". Ekki spillir það heilsunni og ekki er það fjár- eyðsla, svo að neinu nemi. Mér dettur ekki í hug að halda þvi fram. Eg veit vel, að eftir sjónarmiðum þrengstu ein- staklingshyggju er lítil tóbaksnautn réttlætanleg. En ungt fólk í góðu ungmennafélagi hefir ekki þrengstu einstaklings- hyggjusjónarmið. Það finnur að maðurinn er fæddur til fé- lagslífs. Hann er samábyrg félagsvera. Þessvcgna erum við ekki í tóbaksbindindi til þess e. t. v. að treina tilgangs- laust lif nokkrum dögum Iengur eða nurla sáman nokkrum krónum. Við erum bindindismenn af hugsjón, — af köllun. Tóbaksnautn er þjóðfélagsplága, — mannfélagsmein. Niels Dnngal prófessor segir í Heilsurækt og mannamein, að sam- kvæmt ameriskum rannsóknum stytti „hófleg“ tóbaksnautn aldur mannsins. Allir vita að tóbaksréykingar barna og ung- linga eiga voðalegan þátt í afbrotum unglinga. Þó mega allir vila að sómalilfinning og siðferðisþroski sljóvgast áður en komið er út á glapstigu beinna afbrota. En hversvegna skyldu nú börnin taka upp á þessu, sem allir banna þeim? Vegna |)ess, að þau sjá og vita að fjöldi velmetinna og virðulegra borgara hefur þetta yfir og þykist ekki geta tóbaksláus lifað. Ef tóbak væri eins lítið notað hér á landi og t. d. ópíum væru tóbaksreykingar íslenzkra barna eins sjaldgæfar og ópínm- reykingar. Og hér er komið að kjarna málsins. Ilver, sem ekki er með mér, hann er á móti mér. Ilvert sinn, sem þú ljærð þig til að þiggja tóbak þá ert þú orðinn útbreiðslu- maður óvandans. Ilér á við líkingin af skógareldinum. Tó- baksnautnin er voðaeldur, sem geisar í skógi mannfélagsins. Þú ert citt tréð, og annaðhvort tekur þú eldinn í ])ig og leið- ir liann i næstu tré, eða þú tekur eldinn ekki í þig og ein- angrar hann. Og nú liggur það Ijóst fyrir, að flokkurinn okkar hefur unnið þjóðhollt starf með þvi að einangra þann eldinn, sem verstur og skæðastur hefir brunnið á Islandi.

x

Skinfaxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.