Skinfaxi - 01.11.1947, Side 33
SKINFAXI
97
anlel ^r^úitínuaon :
Vé ungmennafélaga.
Samkomustaðir ungmennafélaganna eru vé þeirra
— helgidómur — fyrir fjölþætta starfsemi. Þar á
unga fólkið að njóta æsku sinnar í leik og starfi.
Þar á öll sveitin eða kauptúnið að njóta ánægjulegra
samfunda. Þar á öllum að geta liðið vel, hvenær sem
er og hvert sem tilefnið er til samfundarins.
Umf. hafa frá upphafi vega unnið að byggingu
samkomuhúsa, og nýlega liafa þau hlotið sérstakan
stuðning hins opinbera við þær framkvæmdir, þar
sem eru lögin um félagsheimili, sem hirt eru á
öðrum stað í þessu liefti. Það hefur þótt grundvall-
arskilyrði félagslífsins að eiga samkomuhús og slíkt
menningarmál hefur það verið talið, að rikið liefur
nú veitt þeim málum svipaðan stuðning og skólar og
íþróttamannvirki hafa áður hlotið. Þótt ýmis önnur
félög liafi unnið að húshyggingamálum, þá munu
Umf. eiga langmestan lilut í þeim allra félaga i sveit-
um og kauptúnum landsins.
Eins og að líkum lætur, eru mörg hin elztu sam-
komuhús orðin úr sér gengin og uppfylla sjaldnast
þær kröfur, sem nú eru gerðar til samkomuhúsa. Þau
liafa oft verið af vanefnum gerð og tíðast látið nægja,
ef þar var liægt að halda fundi og fáhreyttar skemmti-
samkomur. En það, sem gesturinn rekur augun i, er
hirðusemi umhverfis húsin og viðhaldið á liúsunum,
liæði ytra og innra. Sums staðar einkennir snyrti-
mennskan umgengni alla, en allt of víða einnig liið
gagnstæða. Nokkra afsökun liafa þau félög, sem búa
við gamlan húsakost og iiyggja á framkvæmdir fljót-
lega, en þau sem eiga nýleg hús og að ýmsu leyti