Skinfaxi - 01.11.1947, Blaðsíða 42
106
SKINFAXI
Lög um félagsheimili.
Samþykkt á Alþingi 22. maí 1947.
1. gr.
Með félagsheimilum er í lögum þessum átt við samkomu-
liús, sem ungmennafélög, iþróttafélög, lestrarfélög, skátafé-
lög, kvenfélög og hvers konar önnur menningarfélög, sem
standa almenningi opin án tililts til stjórnmálaskoðana, eiga
og nota til fundahalda eða annarrar félagsstarfsemi. Sama
gildir um samkomuhús sveitarfélaga.
2. gr.
Félagsheimilasjóði, sem nokkur liluti skemmtanaskatts renn-
ur í, sbr. lög nr. 56 31. mai. 1927, um skemmtanaskatt og þjóð-
leikhús og breytingu á þeim lögum, skal varið til þess að
styrkja byggingar félagsheimila samkv. 1,- gr. Ekki má þó
styrkur til livers félagsheimilis nema hærri fjárhæð cn svai'-
ar 40% af byggingarkostnaði þess. Styrkinn má veita, hvort
heldur eitt slikra félaga, sem um ræðir í 1. gr., stendur að
hyggingu félagsheimilisins eða fleiri í sameiningu.
Nú hefur félagslieimili notið eða nýtur byggingarstyrks úr
rikissjóði auk þess, sem fyrir er mælt í lögum þessum, og
má þá styrkur samkvæmt þeim ekki nema meiru en svo, að
hann ásamt ríkisstyrknum nemi 40% af byggingarkostnaði.
3. gr.
Stjórn félagsheimilissjóðs er i höndum mcnntamálaráðherra.
Veitir liann styrki úr sjóðnum samkvæmt 2. gr. eftir tillög-
um fræðslumálastjóra og iþróttanefndar. Ef fræðslumálastjóra
og íþróttanefnd greinir á, sker menntamálaráðherra úr. Um-
sóknir um styrki skulu sendar íþróttanefnd, og fylgi nákvæm
lýsing af húsi því, sem fyrirliugað cr að byggja, ásamt grein-
argerð fyrir þörfinni á félagsheimili á þeim stað, sem um er
að ræða, og um fyrirhugaða notkun þess. Félagsheimili, sem
styrks nýtur úr félagsheimilasjóði, skal reist á þeim stað og
cftir uppdrætti, sem iþróttanefnd samþykkir. Menntamálaráð-
herra getur og gert það að skilyrði fyrir styrkveitingu, að
sveitarfélag, þar sem félagsheimili á að byggja, láti ókeypis
í té viðunandi byggingarlóð, og sett þau skilyrði önnur viðvíkj-
andi gerð og notkun félagsheimilanna, sem hann telur nauð-
synleg til þess, að þau komi að sem beztum notum og séu sem