Skinfaxi

Volume

Skinfaxi - 01.11.1947, Page 66

Skinfaxi - 01.11.1947, Page 66
130 SKINFAXI Flýðu ekki, æska, inn i kalda skuggann. Sérðu ekki að sólin sindrar inn um gluggann." Dagurinn i dag er hátíðisdagur allrar þjóðarinnar. Hann xninnir livern einasta mann á skyldur hans við land sitt og þjóð. Framundan biða mörg óleyst verkefni. Vinnum þau með liagsmuni heildarinnar fyrir augum, ekki sem sundraðir sér- hyggjumenn — heldur byggjum upp á samfélagið sem sterka og starfandi heild. „Þá sameinast reynslunnar aldaarfur við æskunnar stoltu fyrirlieit. Og kynslóðir mætast í handtaki hlýju frá hafi til dala í borg og sveit.“ Ættjarðarást og áttliugatrygð eru eigindir sem eru sterkur iþáttur i mætti hverrar kysnlóðar til að inna af höndum land- varnarskyldu sína. Flestar aðrar þjóðir en vér íslendingar verða að færa blóðfórnir til að uppfylla þá skyldu, og undan- gengin ár liafa sýnt oss hvílíkar ógnir og skclfingu slíkar fórnir geta leitt yfir þjóðirnar. Land vort — eyjan hvíta, sem á að vera vagga frelsisins i norðurliöfum, krefur ekki börn sín til landvarnarskyldu sem birtist i bræðravígum. Þeirra landvarnarskylda verður af liöndum innt með friðsömu, hagnýtu starfi. Sá, sem trúir á mátt gróðurmoldarinnar og sýnir þá trú sina i giftudrjúgu starfi, og sá sem sækir björg í liafdjúpin, ])cir vinna sína landvarnarskyldu með sæmd. Vér vitum öll, að það eru þessi störf, sem allt véltur á að séu þann veg unnin, að þau geti orðið traustur grunnmúr undir efnahagslegri afkoniu heild- arinnar. Það er afrakstur þeirra, sem skapar möguleikann til þess að þjóðin verði þess megnug að lifa sem frjálsborin menn- ingarþjóð. Og þó svipvindar styrjaldanna liafi opnað ýmsar leiðir til stundarhags, þá mun það nú öllum ljóst, að gifta þjóðarinnar er undir því komin, að æskan láti ekki þau óeðli- legu fyrirbæri gjöra sér skynvillu. Það eru til margar sögur um drýgðar dáðir, ein af þeim hugnæmustu er sagan uin landvörn litla drengsins, sem á lieim- leið að kvöldi dags verður þess var að sjórinn er að brjóta gat á flóðgarðinn og flæða yfir landið. Hann skynjar hætt- una, og án þess að liika eða gefa gaum að eigin áhættu, gjörir hann björgunartilraun sina, og landinu var borgið fyrir dáð

x

Skinfaxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.