Skinfaxi - 01.11.1947, Síða 71
SKINFAXI
135
anna og héraðsskólanna eru svo samtvinnuð. Þá gefur
U.I.A. út ársritið Snæfell, vandað að öllum frágangi. Flyt-
ur það fréttir af félagsstarfinu og greinar um áhugamál
Umf. á Austurlandi.
16. Héraðssambandið Skarphéðinn.
Formaður Sigurður Greipsson, Haukadal. Félögin eru
25 með 176(S félaga, eða aðeins 22 færri en U.Í.A. Er eitt
af elztu liéraðssamböndum U.M.F.I. og jafnan verið með
þeim starfsömustu. Það er nú að gera mjög fullkorainn
iþróltavöll á samkomustað sinum við Þjórsártún. Hefur
lagt í liann um 40 þús. krónur.
Hér að framan liefur verið drepið á nokkrar framkvæmdir
einstakra héraðssambanda, en annarri starfsenii þeirra sleppt.
A öðrum stað er getið um héraðsmót þeirra frá siðastliðnu
sumri, en þau lialda samböndin undantekningarlítið. Þá halda
þau héraðsþing árlega, þar sein starfsmálin eru rædd af full-
trúum frá öllum félögum innan sambandanna. Þar eru gerð-
ar áætlanir um hina sameiginlegu starfsemi féiaganna.
Starfsemi einstakra félaga.
Að venju skal greint frá nokkrum atriðum i starfi einstakra
félaga, samkvæmt skýrslum þeirra árið 1946. Aðeins verður
getið þess markverðasta, en ekki hinnar almennu starfsemi.
eins og málfunda, iþrótta, þátttöku í héraðsmóti og lands-
mótum, ferðalaga, ýmis konar skemmtistarfsemi, sem einkennir
störf flestra Umf. sem vonlegt er. Ekki dylst það, að nokkuð
ber á ]iví, að fólksfækkun i sveitunum jafnframt vaxandi
störfum lamar félagslífið og skapar sums staðar nokkra óvissu
mn framtiðina.
Umf. Drengur í Kjós rak unglingaskóla i nokkra mánuði.
Kennarar: sr. Halldór Jónsson, Njáll Guðmundsson, Gísli og
Ivarl Andréssynir. Gefur út liandritað blað. Fimm eintök konui
út. Hefur senn lokið við hið myndarlega félagsheimili sitt —
Félagsgarð — sem skýrt verður nánar frá siðar. Hefur 56 kaup-
endur að Skinfaxa. Fá ungmennafélög starfa af jafn miklum
myndarbrag. Formaður þess er Axel Jónsson, Blönduliolti.
Umf. Dagrenning í Lundareykjadal hefur nýlega lokið við
sundlaug sina að Brautarholti og liafið framkvæmdir að fé-
iagsheimili.
íþróttafélag Miklaholtshrepps undirhýr félagslieimili i Mikla-
holtslireppnum í samvinnu við lircppsfélagið. Vinnur að hygg-