Skinfaxi - 01.11.1947, Page 76
140
SIvINFAXI
á ungmennafélögin að einbeita sér að því, að til liverskonar
forystustarfa og áhrifa veljist liollir menn í þeim efnum.“
Félagsheimilin. „Fundurinn lýsir ánægju sinni yfir setningu
laga um félagsheimili og væntir ])ess að ungmennafélögin hag-
nýti sér þau fyllilega. Jafnframt hvetur hann félögin til að
gæta þess vel, að hirðing, umgengni og umhverfi á samkomu-
stöðum þeirra, sé með þeim menningarbrag, sem félagsheim-
ilum sæmir.“
Skógræktarmál. „Fundurinn lýsir ánægju sinni yfir þeim
stuðningi, sem mörg ungmennafélög veita skógræktarmálunum,
sem er stórvægilegt sjálfstæðis- og menningarmál. Jafnframt
leggur hann áherzlu á það, að Þrastaskógur verði fegraður og
bættur með gróðursetningu nýrra trjáplantna í framhaldi af
því, sem þegar hefur verið gert og væntir samstarfs nærliggj-
andi félaga um það.“
Söngkennslan. „Fundurinn lýsir ánægju sinni yfir starfsemi
U.M.F.I. að söngmálum og ákveður, að sambandið reyni að
fullnægja óskum héraðssambanda og einstakra félaga um far-
andkennara í söng með sama hætti og íþróttakennara og sæki
til Alþingis um aukinn fjárstyrk vegna þeirrar starfsemi."
Skrifstofa U. M .F. í. „Fundurinn telur brýna nauðsyn á því,
að U.M.F.Í. geti þegar i vetur opnað skrifstofu í Rejrkjavík og
ráðið fastan starfsmann, sem gæti unnið þar ákveðinn tíma
dag hvern. Aðstoðaði liann m. a. héraðssambönd og einstök fé-
lög við undirbúning og skipulag héraðsmóta — útvegaði þeim
ræðumenn, íþróttadómara og aðra starfskrafta.“
Verðlaun á íþróttamótum. „Fundurinn felur stjórn U.M.F.I.
að láta gera skrautrituð viðurkenningarskjöl handa héraðssam-
böndum til verðlauna á mótum þeirra, þar sem mjög örðugt
er að fá verðlaunapeninga og óhæfilega dýrt.“
Skinfaxi. „Fundurinn beinir þeim tilmælum til héraðsþing-
anna, að þau brýni félögin til öflugrar innlieimtu á áskrifta-
gjöldum Skinfaxa og vinni að aukinni útbreiðslu hans. Enn-
fremur verði einstakir ungmennafélagar hvattir til þess að
scnda honum greinar og fréttir af starfsemi félaganna.“
fþróttastarf Umf. Ueykjavíkur. „Fundurinn þakltar Umf.
Reykjavikur fyrir drengilegt starf og sérstaklega fyrir stuðn-
ing við marga ungmennafélaga utan af lándi, sem notið hafa
íþróttaæfinga hjá félaginu. Væntir fundurinn, að Umf. meti
þá aðstoð og notfæri sér framvegis.“
Flugvallasamningurinn. „Fundurinn lýsir þvi yfir, að hann
telur sjálfsagt, að núgildandi millirikjasamningi um Keflavikur-
flugvöllinn verði sagt upp við fyrsta tækifæri. Jafnframt legg-