Skinfaxi

Årgang

Skinfaxi - 01.04.1949, Side 33

Skinfaxi - 01.04.1949, Side 33
SKINFAXI 33 Þýða þessa lands stóð að baki hans sem og annarra fyrirliða á undan honum. Hefði glóðin slokknað í brjósti liennar, liefði hún lagt árar í bát og gefizt upp, tá liefði Jón Sigurðsson aldrei orðið sól á himni fteinnar þjóðfrelsisbaráttu. Var það ekki um þetta leyti árs, öld eftir öld, sem hópar ferðalanga komu i verstöðvarnar á Suður- ttesjum? Þeir komu vestur yfir heiðar og suður ^dir fjöll og báru færur sínar i bak og fyrir. Þessir flokk- ar tróðu ófærðina dag eftir dag, glímdu við hriðar °g frosthörkur, grófu sig i fönn, þá er ekki var ann- ars úr kostar til bjargar. Sumum skilaði aldrei lif- andi úr þeirri dyngju, en flestir náðu þvi marki að vera komnir að sínum keip á kyndilmessu. Oft voru það örþreyttir menn með kalsár á hönd og fót, sem þar stóðu. Þannig á sig komnir byrjuðu þeir þrot- lausa glímu með ár og færi á litlum bátskeljum, segl- iausum lengst af. Þegar sumraði, héldu flokkarnir heim á ný, fóru náttfari og dagfari austur yfir heiðar og norður yfir f jöll. En ekki var það ótítt, að þeir væru þá þunn- skipaðri en verið liafði um veturinn. Sjórinn liafði fyrir því séð, að sumir þeir, sem stóðu við keipinn S]nn á kyndilmessu, fengu aldrei framar að marka sPor í heiðarmosann, það átti aldrei fyrir þeim að hggja að eygja dagsbrún íslenzkrar þjóðfrelsisbaráttu. Þetta er aðeins ein mynd úr því fjöibreytta safni, Sem íslenzk saga varðveitir. En hvers vegna er ver- Jð að minnast á þetta hér, á það nokkuð skylt við það mál, sem auglýst var, að hér yrði fjallað um. Því er «1 að svara, að i nótt hefði ekki sá floti róið til fiskjar frá Keflavik, sem raun ber vitni, ef fyrr- greind barátta liefði ekki verið háð, og hvorki ég né þá þyrftum í dag að ræða um frelsi íslenzkrar þjóð- ar> ef alþýða þessa Iands hefði gefizt upp í þessari haráttu, látið vonarglóðina kulna út í brjósti sér, 3

x

Skinfaxi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.