Skinfaxi

Årgang

Skinfaxi - 01.04.1949, Side 57

Skinfaxi - 01.04.1949, Side 57
SKINFAXI 57 Steján f^unófjaon, Seruitö&um : Bókasöfn uiignieiinafélagit lslendingar eru bókaþjóS. Stundum hafa þeir verið nefndir Kókalaus bókaþjóS, en nú er meira talaS um bókaflóS. ÞaS er kunnugt af sögum, — enda muna elztu menn þá tima, a’ð lílið var um bækur og ólikt því, sem nú er. Ahugi fyrir bókum hefur þó jafnan veriS til lijá íslend- ÍD.gum flestum, og því var eðlilegt, a'ð ungmennafélögin teldu Það lilutverk sitt að eignast bókasöfn handa félagsmönnum til afnota. Hafa þau bætt úr brýnni þörf, þvi fullyrða má, að niun minna hefSi veriS um bókalestur á íslenzkum sveita- heimilum undanfarna áratugi, ef bókasöfn ungmennafélaganna hefðu ekki verið til. Nú er sú breyting á orðin, að meira er um bæltur, og margir einstaklingar sjá sér fært að kaupa meira af bókum en áður var. Ungmennafélögin munu þó enn vera aðalbókakaupandinn i mörgum sveitum landsins, og fá þau til þess allmikinn styrk af opinberu fé, eins og nauðsynlegt er. Það eru þvi þau, sem miklu geta ráðið um það, hvers konar bækur æskufólkiS les helzt. Nú er það svo, að bækur eru mjög misjafnar að gæðum; sumar góðar, aðrar gagnslausar, en margar vondar, og geta veriS skaSIegar fyrir unglinga. Það liefur t. d. vei’ið sagt frá þvi i fréttum, að piltur einn, sem tekinn var fastur fyrir þjófnað, skýrði frá því, að hann hefði farið að iðka slíkt vegna þess, hve hrifinn hann varð af sögum um slynga þjófa, sem alltaf sluppu undan lögregl- unni. Þannig getur lestur slæmra bóka leitt æskuna á glapstigu. Ungmennafélögin liafa hér miklu lilutverki að gegna; og góða aðstöðu til að hafa áhrif á lesefni fólksins, með þvi að hafa aðallega í bókasöfnum sinunx þær bækui’, sem eru hollar til lestrar og hafa göfgandi áhrif á ómótaða unglinga. Það er þannig með líkamlega fæðu, að ekki er það ávallt það gómsætasta, sem mestan líkamsþroska veitir, og sumir verða sólgnir í eiturnautnir, sem hafa skaðleg áhrif á likam- ann. Ekki eru ósvipuð áhrifin, senx bókalestur getur liaft á fólk, þvi glæpamanna-, morð- og draugasögur geta haft svipuð álxrif á hugsunarliáttinn sem eiturnautnir á líkamann. Þær auka

x

Skinfaxi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.