Sjómannablaðið Víkingur

Årgang

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1965, Side 7

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1965, Side 7
hafa efni á að missa, sem kannski er heldur ekki von. Það var í ágúst 1964 er m.s. Hvítanes var á heimleið eftir að hafa losað saltfisks farm í Bilbao á Spáni og Bayonne, Concasneau og Les Sables de Olonne í Frakk- landi. Þetta höfðu verið ánægju- legir dagar. Það hafði aldrei dregið ský fyrir sólu alla ferðina og á öllum stöðunum hafði skip- inu verið tekið með kostum og kynj um. Þetta voru allt skemmti- legir baðstrandarstaðir, og Hvíta- nesið lá alveg upp við baðströnd- ina og baðstrandargestirnir komu í endalausum röðum til að skoða skipið hátt og látt, eins og þeir hefðu aldrei skip séð eða Islend- inga. Ef ekki hefði hent okkur það óhapp, þegar verið var að gera sjóklárt á síðustu höfninni, að einn hásetinn féll ofan í lestina, þá hefðum við verið hæst ánægð- ir með að snúa stefninu heim. En nú vorum við uggandi um þenn- an félaga okkar, sem við hífðum líflausan upp úr hinni djúpu lest og fluttum í ofboði á stóra spítal- ann við hafnarmynnið. Þegar við svo sigldum út úr höfninni, stóðu sjúkrahúss-nunn- urnar í röðum úti fyrir spítalan- og veifuðu til okkar í sífellu og krossuðu á eftir okkur. Hvítanesið var nú tómt, borð- hátt og klauf öldurnar hraust- lega. Við vorum komnir norður fyrir Le Quesant, sem er vest- asti oddi Frakklands þegar okk- ur barst skeyti frá útgerð skips- ins um að við ættum að fara til eyjarinnar Ibiza í Miðjarðarhafi, taka þar saltfarm og flytja til Færeyja! Mörgum um borð kom þetta á óvart, þar sem skipið var búið að sigla tómt í nokkra daga áleiðis heim, en því síðan snúið við og látið sigla suður fyrir Gíbraltar. Þetta var þó síður en svo leið- inleg ferð suður með ströndum Spánar og Portúgal. Þegar siglt var framhjá Lissabon í björtu og borgin blasti við okkur, var okkur skipverjum hugað til á- nægjulegrar veru okkar þar ferð- VÍKINGUR ina á undan, en ég tel Lissabon tvímælalaust einhverja fallegustu og mest aðlaðandi borg, sem ég hefi komið til. Þegar við sigldum framhjá Trafalgarhöfða, þar sem Nelson háði sína frægu sjóorustu, varð okkur hugsað til þessa gamla sæ- garps og er ég viss um, að hon- um hefði þótt mikið til koma, að sjá þau miklu og fögru skip, sem þarna áttu nú leið um. 1 gegnum Gíbraltarsund sigld- um við í ljósaskiptunum og sá- um höfðann mikla, sem stendur á mörkum tveggja heimsálfa, bera við himinn og var það fög- ur sjón. Umferðin þarna um sundið var alveg gífurleg. Skipin komu þarna að úr öllum áttum og af öllum þjóðum. Það var eins og við mynni Miðjarðarhafsins væri einhver sogdæla, sem sogaði öll heimsins skip til sín. Suðurströnd Spánar líturmjög sólbrennd út í fjarska að sjá og víða lítill gróður í hlíðum, en fjöll víða reisuleg. Þegar Balease- eyjar komu í augsýn, var allt eitthvað gróðursælla. Til Ibiza var komið árla morg- uns í þann mund er hin rós- fingraða morgungyðja var að svifta blænum frá andlitinu og fyrstu sólargeislarnir klufu tært loftið. Þá var gaman að taka stýrið úr sjálfstýringunni og vinda stefni að þessari fögru eyj u, sem birtist okkur í morgun- skímunni. Eyjan Ibiza er þriðja stærsta eyjan í þessum fagra eyjaklasa, sem laut Márum fram á 13. öld og kristnaðist síðast af Evrópu- löndum. Mikið og margt má skrifa og segja um Ibiza, þessa perlu Miðjarðarhafsins, sem ferðamannaskarinn hefur í raun- inni ennþá ekki uppgötvað. Fólk- er því einlægt og alúðlegt við ó- kunnuga og lítur ekki á þá sem tæki til fjáröflunar. Um þessar gróðursælu eyjar hafa legið krossgötur sæfara frá öllum tímum. Kaldear, Forn-Eg- yptar, Föníkumenn, Karthago- menn, Rómverjar, Vandalir, Normannar, Tyrkir og Márar að ógleymdum Spánverjunum, er unnu eyjarnar af þeim síðast- nefndu um það leyti er Sturlung- ar voru í essinu sínu á íslandi. Merki alls þessa má líka sjá á fornminjasafninu í Ibiza og öðr- <$>■ ■<s> La Canal. Hvítanes úti á legunni, þar sem saltið er flutt um borS. ----------------------------------------------------------------- 287

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.