Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1965, Side 11
Komið hefur í ljós að grænu
skjaldbökurnar fara reglubundið
milli heimahaga sinna og sér-
stakra staða, þar sem þær verpa.
Ratskyn þeirra virðist svo mikið,
að þeim tekst að finna eyju eftir
1400 mílna langa sjóferð.
Hvað erfiðast til úrlausnar
varðandi hegðun dýra er hæfi-
leiki sumra tegunda til að ferð-
ast reglulega til afskekktra eyja
úti í regin hafi. Mest er vitað
ARCHIE CARR:
um langferðir fuglanna. Nýlega
hafa menn komizt að raun um að
græna skjaldbakan getur engu
síður en krían og albatrossinn
fundið afskekktar eyjar. Vegna
þess að grænu skjaldbökurnar
synda hægt á yfirborðinu eða
aðeins undir því, ætti að reynast
auðveldara að fylgjast með ferð-
um þeirra en fugla, fiska og
hvala. Mikilvægt getur reynzt
þeim mönnum, er rannsaka rat-
skyn dýra,f að athuga grænu
skjaldbökurnar.
Vitneskju um ratvísi grænu
skjaldbakanna hafa menn öðlast
við að kynnast háttum kvendýr-
anna, sem venjulega hafast við
nálægt strönd Brasilíu. Að því
er virðist synda þær alla leið til
Ascensioneyjar á tveggja eða
þriggja ára fresti til að verpa,
en eyjan er aðeins fimm mílur
í þvermál og í 1400 mílna fjar-
lægð. Á þróunarskeiði sínu hafa
skjaldbökurnar öðlast hæfileika
til að finna rétta stefnu og halda
henni yfir opið haf. Vandinn við
Grímur Þorkelsson.
slíka sjóferð virðist vera mjög
mikill, en sú staðreynd blasir við
að skjaldbökurnar eru honum
vaxnar.
Grænu skjaldbökurnar hafast
við í hlýjumsjóvíðsvegaráhnett-
inum. Fullorðnar geta þær orðið
500 pund að þyngd eða vel það.
Grænu skjaldbökurnar eru gras-
ætur og lifa á svonefndu skjald-
bökugrasi, sem mikið vex af, þar
sem skjólgott er á grynningum í
hitabeltinu. Þótt grænu skjald-
bökurnar hafist við á ýmsum
svæðum víðs vegar í heiminum
og auki þar kyn sitt, hefur þró-
un þeirra flestra yfirleitt orðið
án sjáanlegra sérkenna. Grænu
skjaldbökurnar á Kyrrahafi eru
aðeins lítið frábrugðnar grænu
skjaldbökunum við Atlantshaf að
lit og lögun. Eina svæðið, þar
sem tegund með vel greinanleg-
um sérkennum hefur þróast er
við norðurströnd Ástralíu og kall-
ast sú tegund Chelonía depressa.
Grænu skjaldbökurnar verpa að-
eins þar sem meðalhiti vatns-
yfirborðsins kaldasta tíma ársins
er ofan við 68 gráður á Fahren-
heit. Við Atlantshaf virðast norð-
urtakmörk varpstöðva þeirra
hafa verið við Bermudaeyjar. En
hvítir menn, sem þangað komu,
útrýmdu fljótt stofninum. Nyrztu
takmörk grænu skjaldbökunnar,
sem vitað er um, er Freigátu-
grunnið franska úti fyrir strönd-
um Havaiieyja.
Þar til fyrir fáum árum var
helztu upplýsinga um grænu
skjaldbökurnar að finna í mat-
aruppskriftum og munnmæla-
sögum. Nokkur staðgóð þekking
var þó fyrir hendi, meðal annars
athuganir Edwards Banks á
skjaldbökueyjunum í Sarawak og
athuganir James Hornells á Sey-
chelle-eyjum undan ströndum
Austur-Afríku, P. S. P. Derani
yagala safnaði upplýsingum á
Ceylon og F. W. Moorhouse á
Miklu rifgirðingu (Great Barrier
Reef) við Ástralíu. Seinna söfn-
uðu þeir Tom Harrison og John
R. Hendricksson miklum fróðleik
á Samavak umæxlunogvarpvenj-
ur hins stóra skjaldbökustofns
þar. Frá því 1955 hef ég og sam-
starfsmenn mínir við Florida-
háskóla notið styrkja úr vísinda-
sjóði til rannsókna á grænu
skjaldbökunum í Tortuguero í
Costa Rica, en þar eru nú einu
varpstöðvar þeirra við Vestur-
Karíbahaf. Á grundvelli allra
þessara athugana er kleift að
koma saman frásögn, ófullkom-
inni þó, um lífsvenjur grænu
sk j aldbökunnar.
Þótt grænu skjaldbökurnar séu
aðallega sjódýr, fara þær stund-
um í land á fáeinum stöðum við
Kyrrahaf til að baka sig í sól-
inni. Þær hafa sézt á smáeyjum
þar sem þær liggja í sólskini inn-
an um seli og albatrossa. Skjald-
bökurnar við Kyrrahaf verpa
jafnvel stundum á daginn. Hvorki
virðast skjaldbökurnar við At-
lantshaf baka sig í sólskini né
umimiiiimiimmiiimiiimiiiiiimiimiiiiiimmiiimiiimiiiiiiimmiiiiimiiiiiiiiiiiiiimmiiiiiimmiiiiimimimiimmimiiiimmiii
Grímur Þorkelsson þýddi.
mmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmm
grænu skjalilliökiiiiiiar
VÍKINGUR
291