Sjómannablaðið Víkingur

Volume

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1965, Page 19

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1965, Page 19
I Ný áætlun um að bjarga „ANDREA DORIA" Bandaríski bj örgunarfræðingurinn, Captain Don Henry, hefir birt áætlun um að bjarga ítalska farþegaskipinu „Andrea Doria.“ Verðmætin, sem um er að ræða, ef björgunin heppnaðist eru áætluð um 60 milljónir dala. Captain Henry segir að hann hafi myndað bj örgunarfélag, sem geri ráð fyrir að geta bjargað skipinu á 60 dögum. Andrea Doria sökk eftir árekstur við sænska farþegaskipið „Stock- holm,“ 26. júlí 1956. Hann hugsaði sér að dæla lestar og öll rúm í hinu sokkna skipi full af plastfroðu. Hann segir að ítalska skipafélagið sé búið að gefa upp alla von um björgun, og allar skaðabótakröfur vegna slyssins séu að fullu upp gerðar. Ef einhverjum tækist að bjarga skipinu, væri það hans eign. Skipið sjálft er að hans sögn 15 milljón dala virði. Milljón dala virði í ávísunum, gimsteinum og peningum voru í peningaskápum skipsins. Meðal hinna íburðarmiklu skreytinga í sölum skipsins, voru verðmæt málverk, meðal þeirra nokkur eftir Rembrant. 1 farmi skipsins er meðal annars tilraunabifreið, smíðuð hjá Ghia í ftalíu, talin vera 200,000 dala virði, sem Chrysler bifreiða- félagið vill gjarnan eignast. Aðferðin, sem ráðgert er að nota við björgunina er í því fólgin að dæla fljótandi plastfroðu inn í lestar og önnur rúm skipsins. Þar mundi plastið harðna og verða svo fyrirferða- mikið, að nægja mundi til þess að lyfta tíföldum þunga þess. Captain Henry, sem er kafari að atvinnu, segir að hann hafi verið á þilfari Andrea Doria, þar sem hún liggur á hafsbotnii, og þykist sannfærður um að áminnst froðutækni komi að notum. Eftir Shipb. and Sh. Rec. H. J. ur kann að bera skjaldbökurnar langt af réttri leið, þær verða að geta leiðrétt stefnu sína fyrir straumi og vindi, annars ná þær aldrei landi á Ascension. Sigl- ingamenn nútímans verða að gera þessar leiðréttingar með bæði breiddar og lengdarathug- un. Breiddina geta þeir fundið með því að mæla hæð sólarinnar á hádegi. Lengdin verður ekki fundin með jafn einfaldri aðferð. Samt sem áður er vert að athuga uppástungu Pennycuicks varð- andi ferðir skjaldbakanna til As- censioneyjar. Skjaldbökur á austurleið gætu þá leiðrétt af- driftar skekkjur með einfaldri breiddarathugun. Jafnvel það eitt væri undraverður hæfileiki hjá dýrum. Til þess að afla meiri þekking- ar á ferðatækni grænu skjald- bakanna þarf að fylgjast með ferðum þeirra alla leiðina yfir hafið. Við Flóridaháskóla höfum við hafið byrjunartilraunir í þá átt, með því að láta skjaldbökur draga á eftir sér flotholt. Við það er festur helíum fylltur belg- ur, sem svífur yfir flotholtinu og sýnir stað skjaldbökunnar. Þetta virðist lofa góðu á stuttum leið- um. Með aðstoð tilraunastofu flotans erum við að undirbúa til- raunir, sem felast í því að koma fyrir radíósenditækjum á bök- um skjaldbakanna, á flotholtum eða helzt af öllu að festa þeim á helíumbelgina. Vegalengdin frá Brazilíu til Ascension hefur þó til þessa valdið áhyggjum og ótta við að ekki reyndist unnt að halda uppi sambandi við skjaldbök- urnar. Þetta getur þó brátt breytzt. Stjórn flugmála og geimferða hefur í hyggju að koma fyrir tækjum í gervihnöttum til vís- indalegra rannsókna í tengslum við sérstaka áætlun („Apollo program). Gervihnettir kunna að reynast árangursríkustu tækin, sem völ er á, til öflunar upplýs- inga um leiðir skjaldbakanna til eyjarinnar Ascension. Grænu skjaldbökurnar gætu óþæginda- laust dregið flotholt með sendi- VÍKINGUR tæki langar vegalengdir. I hvert sinn, sem gervihnötturinn kæmi í færi við senditæki skjaldbök- unnar tæki hann við merkjum þess og endurvarpaði til stjórn- stöðvar, en síðan væri staður skjaldbökunnar settur út í kortið. Mikilvæg tilraun með þessari aðferð væri að sleppa radíóbún- um skjaldbökum nokkur hundruð mílur austur af Ascension, þar er straumurinn í vestur og því enginn efnafræðilegur leiðarvísir til staðar. Ef skjaldbökurnar röt- uðu samt sem áður til varpstöðv- anna á eyjunni, væri þar með sannað, að þær styddust ekki við efnafræðilegan leiðarvísi. Ef hægt er að skera úr um atriði eins og þetta með aðstoð gervi- hnatta kynni notkun þeirra við rannsóknir á ratskyni dýra (ani- mal navigation) að margborga fyrirhöfnina. 299

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.