Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1965, Page 28
Skólaskipið „Danmörk" er eins og elskuleg fög-
ur kona. Háu siglutrén, ránnar og skínandi seglin
er eitthvað til að horfa á---það minnir á löngu
liðna stund. En þetta skip er engu þýðingarminna
fyrir Danmörku heldur en gljáandi rennileg vöru-
og olíuflutningaskip landsins.
Um borð í þessu skipi hljóta verðandi yfirmenn
í danska kaupskipaflotanum menntun sína.
Hvers vegna að nota seglskip til þjálfunar yfir-
manna, þegar fjöldinn allur af nýtízkulegum vél-
knúnum skipum eru fyrir hendi, sem halda ferð
sinni óháð veðri?
Ferð til sjós á fullkomnu seglskipi, einkum ef
viðkomandi er nemi um borð, verður fljótt til að
greina sundur mann og dreng, sjómann og land-
krabba. Skipstjórinn á skólaskipinu „Danmörk“,
Knud L. Hansen, segir, að ekkert þjálfi yfirmenn
skipa betur en vera þeirra um borð í fullkomnu
seglskipi.
,,DanmörJc“ var teiknað af Aage Larsen og smíð-
að í skipasmíðastöðinni í Nakskov. Smíðinni lauk
1933 og tók þá danska ríkið við skipinu.
Skipið er fullriggað þrímastrað seglskip með
stálskrokk og rár og möstur úr stáli. Það er 790
tonn að stærð og ólíkt hinum miklu seglskipum
fyrri daga að því leyti að það er búið hjálparvél,
sem knúið getur það áfram með 9,5 mílna hraða
á klukkustund. Vélin er 500 hestafla Frich diesel-
vél, sem knýr þriggja blaða skrúfu. Skipið er einn-
ig búið hjálparvélum til rafmagnsframleiðslu,
frystivélasamstæðu, rafmagnsdrifnum dælum, rad-
ar, Decca og dýptarmælum.
Frá 1933 til 1940 var skipið í stöðugum ferðum
og þjálfaði nemendur í 120 manna hópum, og það
var meira en hið erfiða líf um borð í seglskipi, sem
nemendurnir fengu að kynnast.
Vorið 1940, þegar skipið var statt í Jackson-
ville á Florida, komu fregnir um hernám Þjóð-
verja á Danmörku. Lá skipið þama um kyrrt, þar
til árásin var gerð ,á Pearl Harbour, en þá var
skipið tekið í þjónustu Bandaríkjamanna.
308
Knútur L. Hansen,
skipstjóri.
Flestir hinna ungu manna um borð í „Dan-
mörku“ réðu sig til starfa hjá Bandamönnum á
skipum þeirra.
Sjö urðu skipstjórar innan við 21 árs aldurs.
Fjórtán þeirra fórust á sjónum.
Skipstjórinn, Hansen, fyrsti stýrimaður, Langa-
vaard, 2. stýrimaður Roemer, skipslæknirinn o. fl.
héldu áfram störfum sínum á skipinu og þjálfuðu
unga menn til þjónustu í Coast Guard. Á þennan
hátt áttu Danirnir sterkan þátt í að þjálfa menn
til að ráða niðurlögum þýzka arnarins.
Meðan nemarnir dvöldust við nám í Coast Guard
stofnuninni í New London, var þeim veitt 4 vikna
þjálfun um borð í skólaskipinu og nemarnir þar
VÍKINGUR