Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1965, Síða 37
Ingibergur Gíslason.
„Víkingur“ 12,35 tonn.
SmíSaSur í Danmörku 1925.
Ingibergur Gíslason, Sandfelli,
er fæddur á Eyrarbakka 16. jan.
1897. Foreldrar: Gísli Karelsson
og kona hans Jónína Þórðardótt-
ir. Ingibergur ólst upp á ýmsum
bæjum í Flóa. Strax og aldur
leyfði byrjaði hann sjómennsku,
fyrst á Eyrarbakka og síðar í
Faxaflóa. Til Vestmannaeyja fór
hann fyrst 1919 og var þá há-
seti á ,,Kristbjörgu“ hjá Þórarni
Guðmundssyni. Eftir það er hann
vélamaður á ýmsum bátum allt
til 1927, að hann byrjar for-
mennsku með „Frans.“ Eftir það
er Ingibergur með eftirtalda
báta: „Helgu,“ „Ásdísi,“ „Stakk-
árfoss,“ „Skíðblaðnir," „Mýrdæl-
ing“ og „Auði,“ sem hann er for-
maður fyrir fram á þennan dag.
Þá hefur Ingibergur verið for-
maður í 36 ár, síðustu 20 árin
hefur hann stundað dragnóta-
veiðar. Ingibergur er góður sjó-
maður, athugull og stjórnsamur
formaður.
,JIöfrungur“ 23.62 tonn.
SmíSaSur í Danmörku 1917.
Jón Tómasson var fæddur að
Arnartungu í Staðarsveit 3. des.
1896. Foreldrar: Tómas Jónsson
og Margrét Jónsdóttir. Jón fór
ungur með foreldrum sínum til
Víkur í Mýrdal og ólst þar upp.
Jón fluttist til Vestmannaeyja
1921 og gerðist þar sjómaður og
var háseti á m.b. „Gnoð“ hjá Sig-
urði Ingimundarsyni og síðar á
„Atlantis“ og „Blika“ með Sig-
urði. Formennsku byrjar Jón á
„Höfrungi 111“ 1926, jafnhliða
stundaði Jón síldveiðar fyrir
Norðurlandi, á þessum bát. Jón
hætti fljótlega formennsku, en
stundaði sjó allt til dauðadags.
Jón var talinn góður sjómaður,
viss og ábyggilegur, enda var
hann mesta hreystimenni. Jón
lézt 28. sept. 1953.
1 síðasta blaði var sagt að Guðni Gríms-
son hcfði verið með ýmsa báta til 1926,
en átti að vera til ársins 1963.
„Lundi" 13.11 tonn.
SmíSaSur í Danmörku 1925.
Þorgeir Jóelsson, Fögruvöllum,
er fæddur í Vesturhúsum í Vest-
mannaeyjum 5. júní 1904. For-
eldrar: Jóel Eyjólfsson og Þór-
dís Guðmundsdóttir.
Þorgeir byrjaði ungur sjó-
mennsku, eða um fermingu á
opnum bát með Benóný Friðriks-
syni í Gröf og síðar á vélbátnum
„Ester“ og ,,Sigríði“ með Vigfúsi
í Holti. Formennsku byrjaði Þor-
geir 1925 með „Lunda I.“ Eftir
þá vertíð kaupir Þorgeir „Lunda
11“ með fleiri mönnum og hefur
formennsku á honum í 30 vertíð-
ir, og mun það sjaldgæft að for-
maður sé með sama bát svo lang-
an tíma. Einnig var Þorgeir með
„Hörpu,“ „Hrafn“ og loks „Von
11“ fram yfir 1960 og hefur þá
verið formaður í 36 vertíðir. —
Þorgeir var maður, sem alltaf
skilaði sínu, honum brast aldrei
vertíð og var aflakóngur eina
vertíð. — Jafnhliða var hann
stjórnsamur á allan hátt.
VÍKINGUR
317