Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1965, Síða 59

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1965, Síða 59
Ávarp Eggerts G. Þorsteinssonar, ráðherra við setningu 22. þings F.F.S.l. Stjóm Farmanna- og fiskimanna- sambands íslands. Þingforseti! Góðir þingfulltrúar. Það er mér sönn ánægja að fá tækifæri til að ávarpa þing ykkar nú við upphaf þess. Það gerist nú æ tíðara en fyrr á árum, að haldin eru sérstök þing, þar sem rædd eru mál hverrar starfsgreinar fyrir sig. Jafnvel göm- ul og rótgróin samtök eins og Al- þýðusamband íslands hafa tekið þetta form í þjónustu sína og nægir í því efni, að benda á sérgreina sambandsþing þau, sem haldin hafa verið innan vébanda sambandsins að undanfömu og virðist svo sem sér- greinasamböndin muni á komandi tímum, láta meira að sér kveða á vettvangi félagsmálanna í landinu. Persónulega hefi ég haft þá skoðun og hefi enn, að sérgreinasambönd sjálfra vinnustaðanna, þar sem allir á sama vinnustað og við hliðstæð eða skyld störf á öðrum vinnustöð- um, ■— ættu að vera í einu og sama sérgreinasambandi. Aðrir telja aft- ur á móti sérgreinasambönd í því formi, sem nú er gert, sé spor í þessa átt og reynist það svo, þá er vel, og rétt stefnt. Ég minnist þessa atriðis nú hér, því telja má að skipulag Farmanna- og fiskimannasambands íslands sé meðal þess elzta, sem um getur í fé- lagsmálasögu þjóðarinnar í áttina að hugmyndinni um starfandi sér- greinasambönd. Væri hins vegar reynt að útfæra hugmyndina um sérgreinasamband sjómanna allra, án tillits til starfs þeirra um borð, þótt t.d. kjarasamn- ingar yrðu eðlilega í jafn mörgum köflum og sérgreinastörfin eru, þá verður að teljast eðlilegast að far- menn og fiskimenn hvarvetna af landinu, væru í einu allsherjarsam- bandi a.m.k. um ákveðin og til- greind verkefni. Nú er það síður en svo hugmynd mín, að gera hér tillögur um fram- tíðarskipulag samtaka ykkar, það er verkefni þinga ykkar að ræða og VlKINGUR Eggert G. Þorsteinsson, sjávarútvegsmálaráðherra. finna endanlegar niðurstöður á. — Ég minni hins vegar á þá stað- reynd, að svo virðist sem félagsleg endurskoðunar alda fari nú um landið. Eigi félagsleg hagsmunasamtök að gegna hlutverki sínu, er nauð- synlegt, að með vissu millibili verði starfshættir þeirra endurskoðaðir í ljósi breyttrar aðstöðu, til að full- nægja kröfum og óskum meðlima sinna. Það hefur oft verið minni ástæða til endurskoðunar, en nú, slíkum gjörbreytingum, sem öll þjóðfélags- bygging vor, hefur tekið — og og fyrst og fremst hefur þessi breyting átt sér stað í öllum at- vinnuháttum landsmanna. Eðlileg afleiðing þessara breyt- inga í atvinnulífinu er svo aftur óhjákvæmileg endurspeglun þess í starfi þeirra félaga, sem eru í nán- astri snertingu við hinar ýmsu at- vinnugreinar. Eðlilega getur mönnum sýnst sitt hverjum um það, hverjar breyt- ingarnar eiga að verða — þ.e. hvaða „strik á áttavitanum" skuli tekið. — Um hitt verður vart deilt, að slík gjörbreyting, sem átt hefur sér stað undanfarna áratugi í atvinnumálum landsmanna, hlýtur og að framkalla breytingar á raunhæfu félagsstarfi. Verði forystumenn félagsmála al- mennt ekki vel á verði í þessu efni, vofir sá skaði yfir, sem öllu félags- starfi er mest hætta búin af, — þ. e. að sjálfir meðlimir samtakanna missi trú á gildi þeirra. — Ég á þá ósk bezta til samtaka ykkar, að þið sem skipið þetta þing og til þeirra, er á næstu þingum Farmanna- og fiskimannasambandsins sitja, að á- vallt verði í þessum efnum haldið fullri vöku. Það hefur valdið skipstjórnar- mönnum síldveiðiflotans miklum á- hyggjum á þessu hausti, þegar flestra veðra er von, hve erfitt hef- ur reynst um affermingu aflans á Austjarðahöfnum. í sambandi við þennan vanda, vil ég skýra frá því, að stjórn Síldarverksmiðja ríkisins hefur í bréfi til ríkisstjórnarinnar nú fyrir skömmu farið fram á ríkisábyrgð á láni allt að 30 milljón- um króna og aðstoð til slíkrar lán- töku, en fyrirhugaðar eru fram- kvæmdir hjá verksmiðjunum fyrir allt að 40 milljónir kr. og eru fram- kvæmdir fyrst og fremst miðaðar við endurnýjun á tækjum verk- smiðjanna, sem eru að ganga úr sér og þar með til aukinna afkasta, auknu þróarrými, nýjum löndun- artækjum og síðast en ekki sízt nýj- um síldarvogum, — en það hefur um langan tíma verið mikið bar- áttumál sjómanna, jafnt yfir- og undirmanna, að í stað mælingar í tunnum og málum, verði framvegis öll síld vegin upp úr skipi. Ríkis- stjómin hefur nú fallist á þessa beiðni Síldarverksmiðjanna. Sérstök nefnd starfar nú við at- hugun þessa svonefnda „vigtarmáls" undir forystu Gísla Halldórssonar, verkfræðings, og er þess að vænta að á komandi vetri komist veruleg- ur skriður á framkvæmd þessa bar- úttumáls sjómanna, en framgangi þess var af hálfu ríkisstjórnarinnar heitið á s.l. sumri í viðræðum henn- ar og síldveiðiskipstjóranna. Á hverju ári er þjóðin alvarlega minnt á nauðsyn aukinna slysa- varna. Enn þá er nauðsyn á að hvetja til aukinnar samvinnu allra hlutaðeigandi aðila á sjó og landi um þessi mál. Fáar þjóðir munu eiga jafn mik- ið undir því komið að hér sé vel á 339

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.