Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1995, Blaðsíða 11
VÍKINGUR
frásögnum hans af viðskiptum við
Islendinga ekki síður en Græn-
friðunga. Islandsmiðum er hann vel
kunnugur eftir ævintýraferðir á hvala-
slóðir við landið.
Steinar er fæddur vorið 1945 á
eyjunni Donnu, úti fyrir strönd Nord-
lands, skammt frá Mo í Rana. Hann
var kominn í veiðislark með föður
sínum sjö ára gamall og þótti þá þegar
frakkur og ekki alltaf fyrirmynd
annarra barna í orðavali. Sautján ára
fór hann í siglingar en varð að snúa
heim eftir tvö ár til að aðstoða foreldra
sína við búskap og útgerð. Frá árinu
1964 hefur hann búið í Brunneyjar-
sundi, smábæ á Hálogalandi.
/
Lífsreglur Islendinga
Steinar segir í bókinni að tvennt hafi
mótað sig meira en allt annað á æsku-
árunum; sögur af útileguharki sjó-
manna og lestur íslendingasagna. Þar
var nóg af görpum og fleiri slíkum
kynntist hann síðar á íslandi. ís-
lendingar eru menn að hans skapi.
„íslendingar lifa eftir sömu lífsreglu
og ég,“ segir Steinar á einum stað í
bókinni. Þessari lífsreglu vill hann
skipta í þrennt; „Að berjast og að
berjast og að berjast meira.“ Með
þetta að markmiði fór Steinar í fyrstu
hvalveiðiferðina á Islandsmið að lok-
inni vertíð við Lofoten vorið 1978.
Veiðiþjófur við ísland
Við grípum niður í frásögnina þar
sem Steinar er á leið heim á hrefnu-
bátnum Andfjord eftir vel heppnaða
veiðiferð. En hann vill meira:
„Steinar stendur við stýrishúsið og
hugsar meðan Andfjord siglir góðan
byr yfir fiskimiðin norðan Islands. A
Strandagrunni eru þrír íslenskir togar-
ar að veiðum. Einn þeirra togar rétt
við bátinn og mannskapurinn um borð
hefur í nógu að snúast. Hér við norð-
urströndina er jafnan nægur þorskur.
Og þar er líka margur hvalurinn.
Togarajaxlarnir virðast ekki sérlega
áhugasamir um ferðir hvalabátsins
þótt þeir geti ekki komist hjá að heyra
hávaðann í skutulbyssunni og riffil-
skotin sem fylgja á eftir.
Sex tímum síðar kemur varðskipið
Ægir á vettvang og siglir fulla ferð
aftan að Andfjord. Nýskorið hval-
kjötið liggur á hvítmáluðu dekkinu.
Því er í skyndi komið undir þiljur.
Þegar Ægir kemur upp að síðu And-
tjord skipar skipherrann Steinari að
koma um borð með skipspappírana.
Varðskipsmenn ganga hreint til
verks og Steinar er þegar spurður
hvort hann hafi skotið hval innan 50
mílna landhelgislínunnar við ísland.
„Nei,“ segir Steinar, „ég var bara að
skjóta á sjófugla. Við verðum að hafa
eitthvað að éta. Við erum með hval-
kjöt um borð en það er af dýrum sem
við fengum utan 200 mílna markanna
vestur undir Grænlandi.“ Steinar
reynir að bera sig mannalega.
Skipherrann lætur þetta ekki gott
heita. Hann segist hafa talað við tog-
arasjómennina á Strandagrunni og
þeir hafi aðra sögu að segja. „Ef þú
viðurkennir að hafa skotið hvali í
landhelgi sleppurðu með það og getur
haldið áfram ferðinni,“ segir skip-
herra.
Notum fíber gólfgrindur
Hafnarbraut 25,
200 Kópavogi,
sími 44225, fax 44167.
11