Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1995, Qupperneq 48
VÍKINGUR
Þú ert svona harður gegn þessum
lögum?
„Ég mun aldrei virða þessi kvóta-
lög, þau eru sett fyrir menn sem eru að
braska. Ef ég á að borga 85 krónur
fyrir að fá að veiða þorsk — ég lifi á
þessu og vinn við þetta — og fá
kannski sama verð fyrir að ná í hann?
Nei, ég mun aldrei virða svona lög.
Eitt gott dæmi um þessa vitleysu er að
allir krókabátarnir verða að liggja í
landi og mega ekki fara á sjó til að
veiða steinbít, það er sett á þá stopp út
af þorski, þessir kallar eru á hausnum.
Verðið á steinbít er núna 70 krónur og
þeir mega ekki fara á sjó og veiða
hann og hann hverfur eftir svona viku
steinbíturinn.“
Eru stoppdagar hjá þeim núna?
„Já, og það sem meira er; allir
stoppdagar hjá þeim eru þegar það er
smástreymt. Ég skal líka segja ykkur
annað. Ef ég er á kvótabát hérna og
ætla að koma inn með þorskinn í
staðinn fyrir að henda honum, og
henda honum kannski yfir í krókabát
án þess að eigandi hans viti af því, þá
kemur eftirlitið, sem er hérna til þess
að passa okkur, og tekur þetta. Er
betra að henda þorskinum í sjóinn?“
Eru kvótalögin að gera úl af við
ykkur?
„Já, heldur þú að menn hérna fari út
á sjó að veiða þorsk, sem þeir fá fyrir
80 krónur á kílóið, þegar þeir geta
leigt sama kíló á 90 krónur? Ég veit
ekki um neinn útgerðarmann sem
hugsar þannig. Svona er þetta kvóta-
kerfi. Það á að setja lög en ekki ólög.
Einu sinni var sagt: með lögum skal
land byggja og með ólögum eyða.“
Ykkur sjómönnum hlýtur að líða
illa þegar svona mikill fiskur er og
mega ekki veiða hann?
„Mér líður ekkert of vel en ég hef
það ágætt. Menn finna sér leiðir til
björgunar. Ég get sagt þér það að í
gær, þegar eftirlitið var hérna og lög-
regla á staðnum, var landað fimm
tonnum framhjá úr einum bátnum og
átta úr öðrum. Þetta var gert með eftir-
litið hér á staðnum, athygli þeirra var
bara dreift á meðan þeir fóru framhjá
með vörubílana. Þetta kerfi er
ómögulegt og menn finna sér leiðir
framhjá því. Við viljum fara eftir lög-
um og Islendingar eru löghlýðnir, en
þegar búið er að setja ólög yfir þá gera
þeir uppreisn gegn kerfinu og það
gerum við.“
Jón Garbar KE kemur í land, meb
góban afla sem og abrlr bátar.
48