Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.2001, Side 9
Sameiginlegur baráttufundur sjómanna í Sjómannaskólanum
Skbraði á samninganefndir
ao nvika í engujrd
réttlátum krojum
Guðjón Ármann Einarsson framkvœmda-
stjóri Öldunnar setur Jundinn.
Sjómannafélag Reykjavíkur, Mat-
sveinafélags íslands, Skipstjóra- og
stýrimannafélagið Aldan og Vélstjórafé-
lags íslands boðuðu lil barátlufundar
sjómanna sem haldinn var í húsi Sjó-
mannaskóla íslands laugardaginn 28.
apríl 2001. Fjölmenni sótti fundinn og
greinilega mikill hugur í mönnum að
láta hvergi deigan síga í baráttunni fyrir
bættum kjörum sjómanna. Fáum hefði
dottið í hug að nokkrum dögum seinna
væri komin upp sú staða að eitt þeirra
félaga sem til fundarins boðaði, Vél-
stjórafélag Islands, hefði klofið breið-
fylkingu sjómanna og gengið til samn-
inga við LÍÚ. Eflirfarandi yfirlýsingar
og ályktanir voru samþykktar á fundin-
um.
Sjómenn innan Sjómannafélags
Reykjavíkur, Matsveinafélags íslands,
Skipstjóra- og stýrimannafélagsins Öld-
unnar og Vélstjórafélags íslands lýsa
yfir fullum stuðningi við samninga-
nefndir sjómanna í yfirstandandi kjara-
deilu þeirra við útvegsmenn og skora á
samninganefndirnar að hvika í engu frá
réttlátum kröfum sínum gagnvart út-
vegsmönnum og álykta að kröfur sjó-
manna um eðlilega verðmyndun á sjáv-
arfangi sé ekki einungis rétllælismál
fyrir sjómenn, sem grundvöllur hluta-
skiptakerfisins, heldur einnig þjóðþrifa-
mál sem leiði til eðlilegrar samkeppni
milli einstakra útgerða annars vegar og
fiskvinnslunnar hins vegar.
Fundurinn ályktar einnig að áratuga-
löng en árangurslaus barátta sjómanna
fyrir eðlilegri verðmyndun á sjávarfangi,
þar sem veiðar og vinnsla eru á sömu
hendi, hafi leitt til þeirrar niðurstöðu að
önnur kjör sjómanna, svo sem kaup-
trygging, stighækkandi orlofsgreiðslur
miðað við starfsaldur, greiðslur í styrktar-
og sjúkrasjóði viðkomandi félaga og
auknir uppsagnarfrestir, hafi ekki verið í
samræmi við kjaraþróun á hinurn al-
menna vinnumarkaði.
Fundurinn gagnrýnir harðlega þau
vinnubrögð viðsemjenda sjómanna,
samninganefndar Landssambands ís-
lenskra útvegsmanna, að koma í engu til
móts við réttmætar kröfur sjómanna og
halda fast í verðmyndunarkerfi á sjáv-
arfangi sem veitir einstökum útvegs-
mönnum færi á að niðurgreiða afurðir
sínar lil fiskvinnslunnar á kostnað sjó-
manna; að halda fast í samkeppnis-
hamlandi verðmyndurkerfi á sjávar-
fangi sem á engan hátt gefur til kynna
raunveruleg aflaverðmæti úr sjó.
Þá gagnrýnir fundurinn þau vinnu-
brögð samninganefndar útvegsmanna
að halda deilunni fastri með því að
setja á oddinn kröfur um skertan hlut
sjómanna við fækkun í áhöfn fiski-
skipa. Núverandi hlutaskiptakerfi
byggist að þessu leyti á öryggissjónar-
miðum og hagnaður útgerðarmanna
við fækkun í áhöfn stefnir þeim sjónar-
miðum í voða.
Að lokum skorar fundurinn á sljórn-
völd að grípa ekki inn í yfirstandandi
kjaradeilu og leyfa samningsaðilum að
útkljá mál sín í friði.
Sjómenn fylltu salinn og voru i baráttuskapi.
Konur voru miklum minnihluta áfundinum.
Sjómannablaðið Víkingur - 9
Verkfall sjómanna