Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.2001, Síða 13

Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.2001, Síða 13
Grétar Mar Jónsson forseti Farmanna- og fiskimannasambands íslands Sitjum uppi með enn stærri vanda „Þegar útvegsmenn höfnuðu til- boði sem við lögðum fram í janúar um að leggja mönnunar- og verð- lagsmál til hliðar og gefa okkur eitt ár til að finna lausn á þeim, leit ég svo á að þeir ætluðu ekki að semja við okkur, enda er það komið á daginn. Þeir ætluðu alltaf að fá lög á okkur og fengu þau,” sagði Grét- ar Mar Jónsson forseti Farmanna- og fiskimannasambandsins í sam- tali við blaðið. -Fannst þér aldrei sjá til lands á öllum þessum fundum hjá sátta- semjara? „Nei. Þeir voru með alltof flókna útfærslu á verðlagsmálum og stigu alltof stutt skref í áttina til okkar til lausnar á því máli. Miðað við þriggja ára samning var verið að tala um að fara upp í það sem við vorum með 1996 sem hlutfall bein- söluverðs af markaðsverði, en það sem þeir buðu var langt frá því. Fyrir utan það að i vélstjórasamningnum sem er til fjögurra og hálfs árs ná þeir ekki einu sinni að komast upp í þetta.” - Með þeim samningi var samstaða sjómannsamtakanna rofin og virðist sem reynt hafi verið að splundra samtökun- um enn frekar til dærnis með persónu- legum árásum í þinn garð? „Það er afskaplega dapurt þegar reynt er að persónugera svona deilu eins og LÍÚ leyfði sér að gera, eða sérstaklega Friðrik Jón og Þorsteinn Már öðrum fremur. En það segir bara meira urn þá sjálfa heldur en mig. Ég er með 10 manna samninganefnd og við erum ekki að gera annað en fylgja eftir því sem fé- lagsmenn hafa samþykkt.” -Hefur þú trú að þessi gerðardómur sem á að skipa geti leyst þessa deilu með viðunandi hætti? „Gerðardómurinn fer örugglega ekki í það að leysa þetta varanlega. Maður hefur hins vegar trú á því, alla vega ennþá, að hann komi til með að reyna að fara bil beggja og komast að einhverri niðurstöðu. Finna illskástu leiðina, ef svo má segja. En það þarf hins vegar að útkljá þessi deiluefni í eitt skipti fyrir öll. Með þessu lögum förum við bara lengra inn í öngstrætið og sitjum uppi með enn stærri vanda til að leysa þegar lögin hafa runnið sitt skeið. Vandinn er alltaf að stækka og ég sé raunar ekki aðra leið út úr þessu en pólitísku leið- ina. Að Alþingi taki ákvörðun um að allur fiskur fari á markað og setji lög þess efnis. Það er sá hátt- ur sem hafður er í nágrannalönd- unum eins og í til dæmis Færeyj- um, Bretlandi og Danmörku.” -Eru mönnunarmálin áhyggjuefni varðandi gerðardóminn? „Auðvitað er rnaður skíthræddur um að ástæða sé til þess því þetta er það illa unnið í vélstjórasamningnum. En þetta ber allt að sama brunni. Maður harmar að stjórnvöld skuli alltaf fara eftir öllum kröfum LÍÚ. Það er illþolandi og spurn- ing hvort þetta er ekki orðið hættulegt lýðræði í landinu,” sagði Grétar Mar Jónsson. Upphaflegt frumvarp til á laga á sjómenn var tómt klúður „Gjörsamlega galið ákvæði” í upphaflegu frumvarpi sjávarútvegs- ráðherra um bann við verkfalli sjó- manna sagði svo í 3. grein: „Gerðar- dómurinn skal við ákvörðun sína sam- kvæmt lögum þessum taka mið af samningi um breytingar á kjarasamingi milli Samtaka atvinnulífsins vegna að- ildarfélaga Landssambands íslenskra útvegsmanna og Vélstjórafélags íslands sem undirritaður var 9. maí 2001...” „Þetta er gjörsamlega galið ákvæði og með öllu óskiljanlegt að svona klúður komi fram í lagafrumvarpi frá ríkisstjórn- inni,” sagði kunnur hæstaréttarlögmaður í samtali við Víkinginn. Hann benti á að þegar þáverandi ríkisstjórn setti lög á Herjólfsdeiluna árið 1993 og setti hana í gerðardóm, hafi það fylgt að dómurinn ætti að taka tillit lil ákveðinna kjara- samninga. Þetta hafi verið kært til Al- þjóðavinnumálastofnunarinnar (ILO), sem hafi veitt stjónvöldum hér þungar ákúrur af þessu tilefni. Akvæði 3. greinar var breytt á þann veg að gerðardómur skal við ákvörðun sína samkvæmt lögunum „hafa til hlið- sjónar kjarasamninga sem gerðir hafa verið á undanförnum mánuðum að því leyli sem við á og almenna þróun kjaramála...” Sjómannablaðið Víkingur - 13 Vcrkfall sjómanna

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.