Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.2001, Qupperneq 18
Fróðleikshornið
Hvernig verður
sjóveðurspá
Magnús Jónsson
veðurstofustjóri sxarar:
Þegar svara á ofangreindri
spurningu í stuttu máli verður
að hafa í huga að um ýmsar
gerðir sjóveðurspáa getur ver-
ið að ræða sem settar eru fram
með ýmsum hætti. Áherslur
geta einnig verið afar breyti-
legar allt eftir því hvar á jörð-
inni við erum en einnig vegna
þess hversu notendahópurinn
er fjölbreyttur. Þó eiga allar
sjóveðurspár, eins og raunar
veðurspár almennt, sér sam-
eiginlegar forsendur: athugan-
ir, mælingar og mannlega
þekkingu. Á síðustu áratugum
hefur síðan tölvubyltingin
gjörbreytt aðferðum og verk-
lagi við gerð allra veðurspáa
og fleytt fram gæðum þeirra.
Ef sjóveðurspá sem unnin er
á Veðurstofu íslands og miðl-
að af rás 1 Ríkisútvarpsins er
lögð til grundvallar má segja
að atburðarrásin við gerð
hennar og miðlun sé í grófum
dráttum þessi:
I Veðurathugunum og mælingum á á-
standi andrúmsloftsins er safnað saman
frá öllum heimshornum, bæði á landi,
sjó og í lofti. Um er að ræða athuganir á
mönnuðum stöðum á landi og á skipum,
sjálfvirkar mælistöðvar á landi, hálofta-
stöðvar á landi og á skipum, sjálfvirkar
athuganir úr flugvélum, veðurratsjár á
landi, veðurduh á sjó, ýmsar beinar mæi-
Magnús Jónsson
ingar, myndataka og ratsjármælingar úr
gervitunglum o.fl. Þessar upplýsingar
fara svo um alþjóðlegt fjarskiptanet til
allra ríkisveðurstofa heimsins og þannig
eru gagnkvæm skipti á upplýsingum
hornsteinn að allri veðurspástarfsemi
heimsins.
II Þrátt fyrir að þessar upplýsingar ber-
ist á misjöfnum tíma er með tölvutækn-
inni hægt að „reikna” þær til eins sam-
eiginlegs upphafstíma og þannig er á-
stand andrúmsloftsins kortlagt eins ná-
kvæmlega og kostur er. Þetta er gert einu
sinni til tvisvar á sólarhring fyrir alla
jörðina en tvisar til fjórum sinnum á af-
markaðri svæðum heimsins. Til spágerð-
ar fyrir einstök lönd eða landshluta er
gögnum safnað saman á 1-3 klst. fresti
eða jafnvel oftar.
III Flókin reiknilíkön sem byggjast á
eðlisfræðilegum grundvallarlögmálum í
aflfræði, varmafræði, geislun o.fl. hafa
verið þróuð á einstökum veðurstofum
eða í samstarfi margra veðurstofa. Þau
eru notuð til að láta afkastamiklar tölvur
reikna breytingar í ástandi andrúmslofts-
ins og ýmsa veðurþætti allt að tíu daga
fram í tímann á heimsvísu en til
skemmri tíma á smærri svæðum. Sjóveð-
urspá hér er gerð til þriggja sólarhringa
og notast Veðurstofan við niðurstöður úr
svokölluðum svæðalíkönum (limited
area model) bæði frá bresku veðurstof-
unni en einnig úr veðurspálíkani (HIR-
LAM) sem stofnunin er eigandi að ásamt
átta öðrum veðurstofum í Vestur-Evrópu.
Þessir útreikningar eru notaðir til að
vinna sjóveðurspána fyrir fyrstu 36 klst
en fyrir síðari hluta tímabilsins er eink-
um stuðst við niðurstöður útreikninga
sem gerðir eru á veðurspámiðstöð Evr-
ópu í Reading í Englandi.
IV Þessar tölvuspár, ásamt greindum
veðurkortum þar sem veðurfræðingur á
vakt teiknar inn á skil, þrýstilínur, úr-
komusvæði o.fl. eru síðan grundvöllur
þeirra spáa sem birtar eru frá Veðurstofu
íslands hvort sem þær eru á textaformi
eða settar fram myndrænt. Veðurfræðing-
ur skrifar enn texta spárinnar og stýrir
hinni myndrænu framsetningu. Líklegt
er að á næstu árum verði allar veðurspár
að mestu leyti unnar með sjálfvirkum
hætti undir umsjón og eftirliti veður-
fræðings. Nú eru spárnar samdar eða
endurskoðaðar á þriggja stunda fresti all-
an sólarhringinn og vaktaðar þess á milli.
Þannig er hægt að senda út sérstakar við-
varanir ef nýjar upplýsingar berast á milli
reglulegra spátíma sem gefa til kynna að
veður muni víkja verulaga frá gildandi
spá. Slíkar upplýsingar berast fyrst og
fremst frá skipum og eru afar mikilvægar
fyrir alla veðurþjónustuna.
V Þegar spáin hefur verið gerð, er hún
lesin af aðstoðamönnum veðurfræðinga
(eftirlitsmönnum) í Rikisútvarpinu, rás
1. Einnig er hún lesin inn á símsvara,
send á strandastöðvar til lestrar þar, auk
þess að fara inn á vefsíðu Veðurstofunn-
ar, www.vedur.is. Einnig er hún þýdd á
ensku og send út á NAVTEX fjórum
sinnum á sólarhring. Þá er unnið að því
að birta textaspána í textavarpi Sjón-
varpsins rétt eins og spárnar fyrir landið
og einstaka landshluta.
Sjóveðurspánni sem gerð er á Veður-
stofu íslands er, eins og kunnugt er, skipt
í tvennt: spá fyrir miðin næst landi og
spá fyrir djúpin sem ná yfir víðáttumikil
hafsvæði langt frá landinu. Á þessum
stóru svæðum er veðrið oft breytilegt og
væri því æskilegt að geta skipt þeinr
meira niður. Hins vegar er útvarpið tak-
markaður miðill hvað snertir það magn
sem þar er lesið, þótt það sé ennþá öflug-
asti og mest notaði miðillinn til að koma
veðurupplýsingum til sjófarenda. Á Veð-
urstofunni er nú í samstarfi við nokkra
aðila unnið að því að þróa nýtt upplýs-
ingakerfi fyrir sjómenn sem miklar vonir
eru bundnar við. Gæti það bætt mikið þá
þjónustu sem Veðurstofan veitir þessum
dyggasta notendahópi hennar . □
18 - Sjómannablaðið Víkingur