Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.2001, Page 37
landið. Er þetta reiknað út úr magasýn-
um en hugsanlegt er að mat út frá maga-
sýnum teknum með botnvörpu leiði til
ofmats á hlutdeild rækju. Hvað sem
öðru líður, þá skiptir þorskurinn meira
máli fyrir rækju en rækjan fyrir
þorskinn.
2c) Hve hátt hlutfall af fæðunni er
þorskur?
Hlutdeild þorsks í fæðu þorsks er áætl-
uð um 2%. Mest af þessu er 0-3 ára
þorskur. Hér við land hefur dauði af
völdurn sjálfráns verið metinn um 0.8
(60%) á aldrinum 0-3 ára. í Barentshaf-
inu er þetta hlutfall rnikið hærra enda
finnst mun meira af þorski í magasýnum
þar en á íslandsmiðum. Hugsanlegt er
að sjálfrán á íslandsmiðum sé rneira en
hér hefur verið lýst, þar sem það á sér
stað á grunnslóð sem leiðangrar Haf-
rannsóknastofnunarinnar ná ekki vel til,
auk þess sem sjálfrán getur hugsanlega
verið mjög mikið á stuttum tíma þegar
seiðin leita botns.
Hrygning þorsks
3a) Hvað oft hrygnir kynþroska
þorskur á sínu æviskeiði (meðaltal eða
vonargildi)?
Athuganir á gotbaugum þorsks sýna að
þorskur getur hrygnt í mörg ár eflir að
hann er orðinn kynþroska. Hér á árum
áður, er þorskurinn náði háum aldri
greindust þorskar, sem höfðu hrygnt 8-9
sinnum um ævina áður en þeir veiddust.
Meðalfjöldi hrygninga er háður aldurs-
og stærðarsamsetningu stofnsins hverju
sinni. Fjöldi fiska í yngstu aldurshópun-
um (þ.e. þeir fiskar sem hafa aðeins
hrygnt einu sinni) hafa mest áhrif á
stærð þessara gilda sem veldur því að
þau verða lág, þegar sókn er mikil og/eða
þegar stórir árgangar koma inn í stofn-
inn. Sýnt hefur verið fram á hjá þorski í
Kanada að meðalfjöldi hrygninga/nýliða
er á bilinu 1,5-3,5 við sókn (F) á bilinu
1,0-0,1. Með sörnu aðferðunt var áætlað
fyrir íslenska þorskstofninn að fjöldi
hrygninga/nýliða hafi verið á bilinu 0,4-
1,6 á árunum 1955-2000, þar sent lægsta
gildið fékkst árið 1975 og hæsta gildið
árið 1955. Þessi gildi eru svipuð og Jón
Jónsson fékk með talningu gotbauga í
kvörnum. Niðurstöður Jóns sýna, að á
árunum 1945-1949, eftir að stofninn
hafði notið talsverðrar friðunar á stríðs-
árunum, hafi hver þorskur sem náði
kynþroska hrygnt að meðaltali 2,5 sinn-
um, en með vaxandi sókn fór þessi tala
sílækkandi og var komin niður í 1,2 á
tímabilinu 1960-1964.
3b) Getur kynþroskaaldur þorsks
breyst vegna breytinga í umhverfi sjáv-
ar?
Kynþroski þorsks er að mestu háður
stærð. Hængar verða fyrr kynþroska en
hrygnur. Þannig voru 50% hænga orðin
kynþroska við 70 cm lengd samanborið
við hrygnur sem höfðu ekki náð 50%
kynþroska fyrr en við 77 cm lengd á ár-
unum 1985-1999. Einnig hefur verið
sýnt fram á að vöxtur og ástand hefur á-
hrif á aldur og stærð við kynþroska.
Fiskar sem eru i betri holdum, þó að þeir
séu á sama aldri eða jafnstórir, verða fyrr
kynþroska en þeir sem eru í lélegum
holdum. Því er ljóst að þeir þætlir í um-
hverfinu sem hafa áhrif á fæðuframboð
og vöxt þorsks geta haft töluverð áhrif á
aldur og stærð við kynþroska.
3c) Hvað djúpt getur þorskurinn
hrygnt?
Almennt hrygnir þorskur tiltölulega
nálægt landi á 50-150 m dýpi. Þó er
einnig vitað til þess að þorskur hrygni á
meira dýpi í hlíðum landgrunnsins.
Þorskhrygnur í hrygningarástandi hafa
veiðst í landgrunnshlíðunum bæði suð-
ur og vestur af landinu. Á þessum svæð-
um hafa veiðst hrygnur með rennandi
hrogn á 300-500 m dýpi. □
Við hjá SH umbúðum leggjum metnað okkar í að veita þjónusm
sem byggir á þörfum fiskframleiðenda til sjós og lands.
Vöruflokkar eru:
Pappakassar
Plast
Öskjur
Rekstrarvörur
SH umbúðir annast innkaup og sölu á umbúðum
og ýmsum rekstrarvörum fyrir sjávarútveginn.
Deildin nær í krafti stærðar sinnar á íslenska
markaðnum hagstæðu verði fyrir viðskiptavini
sína með útboðum.
0
| SH umbúðir
IFPC Packaging
Lager og sala, Héöinsgötu 2, 105 RvíK
Sími: 560 7881 • Fax: 581 4215
Sjómannablaðið Víkingur - 37