Sjómannablaðið Víkingur

Årgang

Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.2001, Side 42

Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.2001, Side 42
Tveir af togurum Granda við bryggju í Reykjavík. legði nokkuð meira og myndarlegar af mörkum en hún gerir núna í öðru formi heldur en tekjuskatti. En þetta er einn af óvissuþáttunum núna. Verður gjaldtaka, í hvaða formi, hve mikil og svo framveg- is.” - Telur þú að gjaldtaka yrði til þess að sætta menn við núverandi kvótakerfi? „Ýmsir eru ósáttir við kerfið út af því að ekki er goldið meira fyrir aflaheimild- ir en raun ber vitni. Eg tel að þessir aðil- ar myndu ná sáttum við kerfið með gjaldtöku. En svo eru aðrir sem vilja ekki hafa kvótakerfið, eins og þeir sem eru hlynntir sóknarmarki eða vilja lands- byggðarkvóta og enn aðrir vilja nytja stærri hluta veiðiheimildanna til smábáta á víð og dreif um landið. Því eru ýmsir sem ekki yrðu sáttir við kerfið þó að stórútgerðum yrði gert að borga meira fyrir heimildirnar.” Ekki hagræn rök fyrir víðtækri sameiningu - Sœlum við uppi með aðeins þrjú til fjögur stórútgerðarfyrirtæhi ef kvótaþakið yrði afnumið? „Ég held að það séu ekki nein þung hagræn rök fyrir miklu stærri fyrirtækj- um en nú er. Hagkvæmnirökin taka fyrst og fremst til fyrirtækja sem eru nálægt hvert öðru. Ég sé ekki að það sé hagræði fyrir Granda að sameinast fyrirtæki sem er utan atvinnusvæðisins við Faxaflóa og Reykjanes. Sjávarútvegsfyrirtæki i ólík- um landshlutum geta haft hag af sam- „Mér sýnist, að í upphafi hafi verið illa staðið að á- kvœðum kjarasamn- inga um hvernig verðmeta skyldi fisk í svokölluðum beinum viðskiptum og á niðurlœgjandi háttfyrir sjómenn.” vinnu en ég sé ekki hagræn rök fyrir víð- tækri sameiningu nema þá fyrirtækja á sama landssvæði sem gætu notfært sér kosti verkaskiptingar og hagkvæmni stærðar í vinnslu. Það má hugsa sér sam- runa fyrirtækja á Eyjafjarðarsvæðinu, Skagafjarðarsvæðinu eða í námunda við ísafjörð, svo ég hugsi upphátt. Það eru ýmis smá og meðalstór fyrirtæki sem geta vel haldið velli i samkeppni við stærri fyrirtæki. Hvaða hag ætti til dæmis Ögurvík að hafa af því að skip þess væru hluti af flota stórfyrirtækis? Það eru ýmis minni fyrirtæki sem eru mjög sterk og vel rekin. Sumir vilja gjarnan vera sjálfs síns herrar og sjá ekkert eftirsóknarvert við að fyrirtæki þeirra verði hluti af miklu stærri heild. Hin stærri sjávarúl- vegsfyrirtæki eru reyndar að ýmsu ólík að gerð. Meðat annars má ætla að for- ráðamenn þeirra séu ekki allir eins í af- stöðu sinni til vaxtar og yfirráða. Svo get ég ímyndað mér, að frammistaða og framkoma risanna tveggja í sölu sjávaraf- urða muni geta ráðið einhverju um hvernig formgerð sjávarútvegsins muni þróast. Þegar á allt er litið, ræð ég illa við að svara spurningu þinni.” Útlendingar hafa ekkert að gera í útgerð hér Talið barst að umræðum um hvort heim- ila eigi útlendingum að fjárfesta í íslensk- um útgerðarfyrirtækjum. Árni Vilhjálms- son hafði eftir nafna sínum Mathiesen sjáv- arútvegsráðherra, að raunveruleikinn væri sá að útlendingur geti átt allt að 49,99% hlut. Sú tala stœði ekki í lögunum, en þetta væri hægt með óbeinni eignaraðild gegnum önnur fyrirtæki. „Ég held því að fyrirstaðan gegn því að 42 - Sjómannablaðið Víkingur

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.