Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.2001, Síða 47
Örstutt viðkoma í brúnni á Skeiðfaxa sem hefur flutt tvœr
milljónir tonna af sementi
Fjórtán og hálfur hringur
Jfca.
SRCiurAxi
Skeiðfaxi leggst að bryggju i Reykjavík.
Ef einhver heldur að reglubundnar
siglingar milli Akraness og Reykjavíkur
hafi lagst af með tilkomu Hvalfjarðar-
ganganna og brotthvarfs Akraborgar þá
er það misskilningur. Sementsflutninga-
skipið Skeiðfaxi siglir stöðugt á milli
með sínar fjórar kúlur uppúr dekkinu og
lætur ekki fara mikið fyrir sér. Enda flyt-
ur Skeiðfaxi hvorki fólk né bíla heldur
sement sem byggingaróðir höfuðborgar-
búar gripa fegins hendi og breyta í stein-
steyptar blokkir, raðhús, einbýlis-
hús, verslunarhallir og Guð veit
hvað. Það má segja að þau séu ófá
íbúahverfin sem Skeiðfaxi hefur
flutt til Reykjavíkur, ef svo má að
orði komast. Safnast þegar saman
kemur og okkur lék forvitni á að
vita hvað Skeiðfaxi væri búinn að
flytja mikið af sementi frá því hann
hóf siglingar árið 1977.
Við sátum fyrir Skeiðfaxa þegar
hann lagði að bryggju á kyrru síð-
degi við móttöku Sementsverk-
smiðjunnar í Reykjavik. Einar Ein-
arsson stýrimaður var frarná við
annan mann en Ingimar Magnús-
son skipstjóri lagði fimlega uppað
eins og hann væri að leggja smábíl
í stæði. Það var bundið í hvelli og
Einar stýrimaður var fljótur að
tengja dælur við sementstanka
skipsins. Þegar við komum um
borð var lngimar í brúnni, þrek-
vaxinn maður og rólegur í framkomu. í
þann mund var Einar kominn upp og
þegar tölulegar staðreyndir voru heimt-
aðar á borðið, setti Ingimar upp gleraugu
og blaðaði í pappírum.
,Já, þetta er hérna. Þann 26. apríl síð-
ast liðinn var Skeiðfaxi búinn að flytja
tvær milljónir tonna af sementi og sigla
314.917 mílur. Hvað varst þú svo búinn
að reikna út, Einar?”
„Þetta samsvarar því að skipið hafi
siglt fjórtán og hálfan hring umhverfis
jörðina,” svaraði stýrimaður af bragði.
Við fórum að reyna að rengja þessa út-
reikninga en gáfurn það upp á bátinn því
Einar var með þetta allt á hreinu. (Auk
þess eru blaðamenn yfirleitt lélegir í
reikningi).
Ingimar er búinn að vera 19 ár á
Skeiðfaxa, þar af skipstjóri frá 1996.
Fastráðnir skipstjóra á undan honum
voru Haraldur Jensson og Kristján Krist-
jánsson svo það eru ekki tið
mannaskipti í brúnni. Ingimar
segir að ein ferð frá Akranesi til
Rcykjavíkur og aftur lil baka með
lestun og losun taki venjulega um
10 klukkustundir, en skipið lestar
rúm 400 tonn i ferð. Þá fer Skeið-
faxi stundum til Isafjarðar og Ak-
ureyrar en það eru einu staðirnir
úti á landi sem geta tekið við sem-
enli í lausu. í fyrra var metsala hjá
Sementsversksmiðjunni á Akra-
nesi, 140 þúsund tonn og af því
voru 110 þúsund tonn flutt með
Skeiðfaxa. Það eru fjórir í áhöfn
en tveimur bætt við þegar farið er
á ísafjörð eða Akureyri. Skipverjar
búa allir á Akranesi nema Einar
stýrimaður sem er nýfluttur í
Grafarvoginn. En ætlar Ingimar
skipstjóri að vera önnur 19 ár í
brúnni á Skeiðfaxa?
„Ef Guð lofar og Ingibjörg vill.” □
Tveir stæltir og stœðilegir í brúnni: Einar Einarsson stýrimað-
ur og lngimar Magnússon skipstjóri.
Sjómannablaðið Víkingur - 47