Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.2001, Side 49
þjóða Siglingastofnuninni. Það táknar að
réttindi íslenskra skipstjórnarmanna eru
þar með viðurkennd af þeirri stofnun.
Menntunarmál íslenskra skipstjórnar-
manna eru því komin undir eftirlit IMO,
sem á að tryggja að námið fullnægi
stöðugt öllum alþjóðakröfum. Menntun
skipstjórnarmanna hefur verið að “al-
þjóðavæðast” á síðustu árum og hefur
námsefni Stýrimannaskólans í Reykjavík
þróast i þá átt. Með aðild íslands að
STCW alþjóðasamningnum um mennt-
un, þjálfun og vaktsöður sjómanna hefur
ísland tekið á sig þær skuldbindingar að
mennta og þjálfa sína sjómenn innan
viðurkennds gæðaeftirlitskerfis sem við-
urkennt verði af IMO og gefur það visst
aðhald í menntunarmálum, sem er mikil-
vægt á þeim tímum þegar vaxandi þrýst-
ingur er á skyndilausnir í mönnun skipa.
Innan skólanefndar Stýrimannaskólans
í Reykjavík helur komið fram að LÍÚ vill
kanna möguleika á að stofna “Fræðslu-
miðstöð fiskveiða og siglinga” með
breyttu námsfyrirkomulagi sem Far-
manna- og fiskimannasamband íslands
telur ekki tímabært að taka til umræðu á
meðan fyrir Alþingi liggur frumvarp til
laga sem kveður m.a. á um breytingar á
atvinnuréttindum skipstjórnarmanna. Er
einnig rétt að benda á að með þeirri
breytingu sem gerð var á skólanum og
námi innan hans, úr bekkjarkerfi í á-
fangakerfi, sem nú fyrst er að komast í
framkvæmd, og vonir eru bundnar við,
er óráðleg að setja menntunarmál skip-
stjórnarmanna í uppnám, eina ferðina
enn, áður en reynsla er komin á hið nýja
kerfi. Stýrimannaskólinn verður að fá
frið til að sanna sig í nýju kerfi.
íslenskir skipstjórnarmenn hafa sýnt
endurmenntunarnámskeiðum lítinn á-
huga til þessa, nema námskeiðum sem
eru „lögbundin” þ.e. GMDSS, IMDG og
þess háttar. Einstaka útgerðir hafa þó
boðið upp á námskeið, sem hafa verið
sæmilega sótl og hefur Stýrimannaskól-
inn auglýst námskeið af ýmsurn toga fyr-
ir skipsljórnarmenn, en því miður orðið
að fella niður íjölda þeirra, vegna ónógr-
ar þátttöku. Ber að fagna því þegar út-
gerðarfyrirtæki sýna frumkvæði í endur-
menntun sinna starfsmanna en um leið
að harma ef lítill áhugi er meðal skip-
stjórnarmannanna sjálfra að sækja slík
námskeið. Menntun kostar sitt, en
menntun er fjárfesting sem borgar sig til
framtíðar, en engin menntun er ókeypis.
Nýlega eignaðist skólinn svokallaðan
sjónsamlíki (Visual Simulatior), þar sem
hægt er að leggja að og frá bryggju og
sigla skipum af ýmsum stærðum og gerð-
um við næstum hvaða aðstæður sem er.
Er hér um mikið framfaraspor að ræða
fyrir þjálfun skipstjórnarmanna sem enn-
þá er meira sniðið fyrir farmenn en fiski-
rnenn og ætti það að verða keppikefli að
bæta þennan þátl þjálfunarinnar með
Þania cru m.a. Friðrik Höskuldsson, Einar H. Valsson og Kristján Cuðmundsson.
á „eigin” skipum við fjölbreyttar aðstæð-
ur.
Er það von stjórnar FSK að félagar gefi
sér meiri tíma til að sækja námskeið og
helst að gera endurmenntun að föstum
lið í sinni dagskrá.
Norðurlandasamstarf
SKSÍ hefur að venju verið í góðu sam-
starfi við systurfélög sín á Norðurlöndum
Haustfundurinn 2000 var svo haldinn í
Kaupmannahöfn 11. til 13. október s.l.
og sótti Guðjón Petersen fundinn fyrir
hönd félagsins. Voru mörg mál rædd á
fundinum en þau helstu voru, auk grein-
argerða frá einstökum aðildarlöndum,
“Shipboard Management - ISM-koden,
framtíð sjómannamenntunar, Sole vakt-
reglur, alþjóðasamstarf, og Norðurlönd
og Evrópusambandið.
Ásgrímur Ásgrímsson og Ómar Karlsson voru meðal fundarmanna.
Benedikt Valsson, Lárus Crimsson og Örn S. Daníelsson.
víðtækari útfærslum í fiskveiðiherma
einnig, þar sem hægt er að æfa beitingu
skipa við hinar ólíkustu veiðiaðferðir.
Klæðskerasaumuð námskeið fyrir
hafnsögumenn, starfandi skipstjóra og
stýrimenn verða væntanlega í boði, þar
sem mönnum gefst kostur á að þjálfa sig
og var samþykkt á stofnfundinum að
halda því samstarfi áfrant af hálfu FSK.
Var vorfundur Nordisk Navigatörkongres
haldinn á íslandi dagana 14. til 16. júní
s.l. og þóttist takast vel. Buðum við uppá
fundaraðstöðu í Sæbóli en hinir erlendu
gestir gistu á Hótel Eddu á Laugarvatni.
Sjómannablaðið Víkingur - 49