Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.2001, Page 68
Stækka skurðinn
Ég hef verið á þessum siðum að boða ykkur lesendum góðum
komu gámaskipa sem geta flutt allt að 10.000 gáma þótt ekki sé
enn komið skip yfir 7.000 TEU’s. En þeir í Panama eru þó
komnir aðeins lengra því nú hyggja þeir á stækkun skipastigans
hjá sér með því að setja inn þriðja stigann sem á að geta tekið
12.000 gáma skip í gengum skurðinn. Pað er ljóst að all víða er
farið að gera þær ráðstafanir að útgerðarmenn sjái engar hömlur
á að hleypa stærri og stærri gámaskipum í hina hörðu sam-
keppni um flutningana á heimshöfnum.
Grískar ferjuútgerðir eru ekki allar með gömul skip en 77 ferjum verð-
ur að skipta út á næstu árum
Minnka meðalaldurinn
Gríska ríkisstjórnin hefur sett fram þá kröfu að allar ferjur
eldri en 30 ára eigi að endurnýjast fyrir árið 2006. Þetta þýðir
að 77 af 124 þarlendum ferjum munu verða teknar úr rekstri
fyrir þennan tima. Þessi krafa á eftir að reynast litlum ferjufyr-
irtækjum erfið í framkvæmd þar sem þær verða bæði að finna
ný skip og fjármagn til að kaupa þau. En ríkisstjórnin stendur
föst á sínu þrátt fyrir mótmæli og ber fyrir sig að þetta verði
krafa Evrópuráðsins og hana nú.
Ryðhaugur mánaðarins
Fyrir skömmu útnefndi Paris MoU, eða hafnaríkiseftirlitið,
sitt mánaðarlega lélegasta skip sem þeir kalla ryðdollu mánaðar-
ins. Það þykir ekki vera alveg það besta að fá þessa vafasömu
útnefningu en að þessu sinni hlaut hana flutningaskip sem
hvorki hafði rétt nafn, rétt IMO núnier eða rétt skipsskjöl.
Skipið var í eigu útgerðar í Georgíu en skráð í Kambódíu og var
það með nafnið M Trans 1 en átti í raun að vera Primo. Alls
voru 47 atriði sem reyndust vera í ólagi þegar skipið var skoðað
og er ólíklegt að það ntuni sigla mikið um heimshöfin á næstu
mánuðum.
/■„
Bílamir hurfufrá borði háhraðaferjunnar Stena Discovery.
Líka sjóbúa í logni
Það er betra að sjóbúa farm þótt jafnvel veður sé eins og best
verður á kosið, logn og sléttur sjór. Það var alla vega sú niður-
staða sem áhöfnin á háhraðaferjunni Stena Discovery komst að
fyrir skömmu. Ferjan er í siglingum í Ermasundi ntilli Hoek
van Holland og Harwich og tekur bæði bíla og farjtega. Vöru-
bifreið sem var um borð hafði ekki verið bundin en einungis
settir klossar við framhjól hennar. Þegar ferjan var komin á
fulla ferð í Ermasundinu fór vörubifreiðin af stað þar sem
gleymst hafði að setja hana í handbremsu og tók hún með sér
þrjá pallbíla að skutlokunni sem jafnframt er keyrslubrú inn í
skipið. Og ekki nóg með það heldur tókst þessum bifreiðum að
mynda slíkann þrýsting að skuthurðin opnaðist og út sluppu
bílarnir allir saman. Ferjan komst til hafnar á ný en enginn
hefur séð bílana aftur. Þeir hafa kanski bara verið sjóveikir.
Langtímaleiga
Útgerðin SeaContainers hefur gert 40 ára samning við grísku
ríkisstjórnina unt að annast rekstur Korintuskurðsins. Útgerðin
sér hag í að taka að sér jrennan rekstur og bendir að vegna
hækkandi olíuverðs muni skip í auknu mæli nýta sér skurðinn.
Árlega fara um 12.000 skip unt skurðinn en SeaContainers ætla
að fjárfesta fyrir um 3 milljónir bandaríkjadala í farþega- og
ferjubryggjum við skurðinn auk aðstöðu fyrir ferðamenn og
með því móti lokka fleiri skemmtiferðaskip til að nýta sér þenn-
an einstaka skipaskurð □
DNG handfæravindur og STK staðsetningarkerfi
Átaks- og lengdarmælingar fyrir togskip og dragnótabáta
Sjóvéla línukerfi og LineTec stjórnbúnaöur
VAKI
DNG
Armuli 44 • 108 Reykjavik
sími 595 3000 • fax 595 3001
Lónsbakki • 602 Akureyri
sími 461 1122 • fax 461 1125
www.vaki.is
v a k i @ v a k i. i í
68 - Sjómannablaöið Víkingur