Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.2001, Page 72
Þjónustusíður
I Sjóklœðagerð íslands hf. mun flytja í nýtt húsnœði í Garðabœ
en gceðin verða söm og áður
66°N Sjóklæðagerðin hf. hefur tekið á-
kvörðun um róttækar hagræðiaðgerðir
og stefnir á sameiningu framleiðslunnar
á einum stað. Hafist hefur verið handa
um nýbyggingu að Miðhrauni 11 í
Garðabæ. Þar er byggt 3.200 fermetra
hús á tæplega átta þúsund fermetra lóð
og verða rúm fyrir 75 bílastæði í þágu
viðskiptavina. Þarna mun Sjóklæðagerð-
in sameina allan rekstur sinn sem áfram
verður rekinn á íslandi. Jafnframt á og
rekur Sjóklæðagerðin verksmiðju í Lett-
landi en allur fatnaður fyrirtækisins
verður hannaður í hönnunardeild nýja
hússins í Garðabæ. Framtíðaráform fyrir-
tækisins eru áframhaldandi þróun á ís-
lenskum fatnaði í samvinnu við íslenska
sjómenn og aðra landsmenn.
Þetta kom fram í viðtali sem Sjó-
mannablaðið Víkingur átti við Þórarinn
Elmar Jensen framkvæmdastjóra Sjó-
klæðagerðarinnar. Hann býr yfir langri
reynslu af þessari starfsemi þar sem hann
byrjaði að vinna við sjófatnað fyrir 45
árum og hefur yfirgripsmikla þekkingu á
öllu því er viðkemur framleiðslu á sjó-
fatnaði og ytri fatnaði almennt.
Sjóklæðagerðin hefur átt velgengni að
fagna i rekstri sínum allt frá upphafi
framleiðslu í sjófatagerð árið 1925, þegar
það hóf rekstur sinn í bakhúsi við Lauga-
veginn. Framleiðslan hefur verið í sam-
felldri þróun á yfir 75 ára ferli en þó með
nokkrum tilbrigðum. Fyrirtækið hefur
verið undir sömu stjórn allt frá 1956
þegar Verksmiðjan Max hf. hóf fram-
leiðslu sjó- og regnfatnaðar, sem síðan
leiddi til kaupa á Sjóklæðagerð íslands
hf. 1966.
Vinsæll og viðurkenndur fatnaður
Styrkur fyrirtækisins er meðal annars
fólginn í fjölbreyttri framleiðslu sem hef-
ur unnið sér öruggan sess í hugum neyt-
enda og vegna þeirrar ímyndar sem fyrir-
tækið og framleiðsla þess hefur skapað
sér í gegnum tíðina. Mikil gæði fatnaðar-
ins má rekja til kröfuharðra neytenda og
þess návígis sem fyrirtækið hefur alltaf
notið gagnvart markaðnum.
Það er áberandi í rekstrarsögu fyrir-
tækisins hversu fljótt það hefur lileinkað
sér tækni og nýjungar í framleiðslu,
bryddað upp á nýjungum í hönnun og
yfirleitt haldið forskoti á aðra keppendur
á innlenda markaðinum. Frumkvæði og
viðbragðshraði hafa ávallt verið áberandi
þáttur hjá fyrirlækinu. Mjög fjölbreytt
frantleiðsla sem spannar vítt svið fataiðn-
aðar hefur þróast innan fyrirtækisins og
mun nú nýtast vel til nýrrar útrásar og
nýrra markaða erlendis.
Fjölbreyttir framleiðsluþættir
Virkir framleiðsluþættir í fyrirtækinu
gefa nú aukna möguleika til að hefja
frekari útrás á erlenda markaði með
framleiðslu fyrirtækisins í Lettlandi að
bakhjarli þar sem nú er framleitt í sam-
keppnishæfu umhverfi og samkeppnisað-
staðan eins og best verður á kosið. Mark-
miðið er auka framleiðslu, framleiðni
með aukinni sölu á erlenda markaði jafn-
framt því að styrkja og viðhalda mark-
aðsstöðu fyrirtækisins hér innanlands.
Framleiðsluþættir fyrirtækisins eru þessi:
- Sjó- og regnfatnaður
- Almennur kulda- og vinnufatnaður
ásamt þjónustufatnaði fyrir fyrirtæki og
opinberar stofnanir.
- Útivistarfatnaður í háum gæðaflokki
úr öndunarefnum og öðrurn hágæðaefn-
um.
- „Plartech”-Fleec fatnaður fyrir alla
aldurshópa.
- Vinyl-glófinn sem samkvæmt nýleg-
um rannsóknum er talinn sterkasti og
endingarbesti Vinyl-glófinn á ntarkaðn-
um. Hann hefur verið þróaður og fram-
leiddur í meira en 40 ár fyrir íslenska
sjómenn í náinni samvinnu við þá.
- Flotvinnufalnaður sem er hátæknileg
framleiðsla með mikla þróun að baki.