Náttúrufræðingurinn

Ukioqatigiit

Náttúrufræðingurinn - 2003, Qupperneq 3

Náttúrufræðingurinn - 2003, Qupperneq 3
Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags Náttúrufræðingurinn OG UPPLÝSINGASAMFÉLAGIÐ Náttúrufræðingurinn er með elstu tímaritum landsins og hefur komið samfellt út frá 1931. Hann hefur jafnan haft töluverða útbreiðslu bæði meðal fræðimanna og áhugamanna um nátt- úrufræðileg efni. Á forsíðu fyrsta heft- is stóðu einkunnarorðin „alþýðlegt fræðslurit í náttúrufræði" og eins og sjá má á síðunni hér á móti eru þetta enn kjörorð blaðsins. Enginn formáli eða leiðari var í fyrsta heftinu en útgef- endurnir, Árni Friðriksson og Guð- mundur G. Bárðarson, fylgdu ritinu úr hlaði með lítilli tilkynningu á kápu- síðu. Þar stóð m.a.: „í h'mariti þessu verða birtar smágreinar, við alþýðu hæfi, um ýmis efni í dýrafræði, grasa- fræði, jarðfræði, landafræði, eðlis- fræði, efnafræði, stjörnufræði og öðr- um greinum náttúrufræðinnar. Fái ritið sæmilegar viðtökur er svo til ætl- ast, að út komi minnst 12 arkir á ári, eða sem svarar einni örk á mánuði, og kostar hver örk 50 aura. I hverri örk verða fleiri eða færri myndir efninu til skýringar". Undir tilkynningunni var svo auglýsing frá Sportvöruhúsi Reykjavíkur um nýjustu gerð mynda- véla. Auglýsingar á útsíðum eru því ekki nýnæmi í þessu riti. Náttúrufræð- ingurinn hefur vaxið og dafnað í rúm 70 ár og hefur átt því láni að fagna að allir helstu náttúruvísindamenn landsins hafa skrifað í hann. Hann hef- ur gengið í gegnum nokkur breytinga- skeið bæði hvað efnistök og einkum þó útlit varðar, en heldur þó fast í þau megingildi sem mótuðust strax á upp- hafsárunum. Hann leitast jafnan við að birta vandaðar fræðilegar greinar í aðgengilegum búningi í bland við létt- ara mál, skreyttur myndum og kort- um „efninu til skýringar". Tilgangur ritsins er þó ekki aðeins sá að vera vettvangur höfunda sem þurfa á slík- um ritvelli að halda eða svalandi brunnur fróðleiksþyrstri alþýðu, hann hefur einnig það hlutverk að laða fram greinar og hvetja menn til að koma fræðum sínum á framfæri við lærða sem leika og rjúfa þannig fræðilega múra og faglega einangrun. Náttúrufræðingurinn er vísindarit og þar birta menn ritgerðir sem geng- ið hafa í gegnum hreinsunareld fag- legrar ritrýni. Hún er fólgin í því að rit- stjórn sendir slíkar ritgerðir til yfirlestrar og umsagnar færustu manna á hverju sviði. Athugasemdir eru síðan sendar höfundum og er til þess ætlast að þeir taki tillit til þeirra. Stundum er greinum hafnað. í vís- indasamfélagi nútímans eru skrif í viðurkennd fræðirit virt mönnum til vegsauka og oftar en ekki til kaup- auka, og í hinni hörðu samkeppni um störf við háskóla og önnur fræðasetur er það oft ritalistinn, einkum greinar í virtum og ritrýndum fræðiritum, sem skiptir sköpum um hvort menn hreppa stöður eður ei. Á síðustu árum hafa gamalgróin vísindatímarit í æ ríkara mæli farið að birtast á veraldarvefnum samhliða því að þau eru / prentuð á hefðbundinn hátt. Þannig háttar ekki til um Nátt- úrufræðinginn, þótt á því geti orðið breyting á næstu árum. Hins vegar fer efnisyfirlit hans inn á upplýsingaveit- ur veraldarvefsins og þar er hægt að finna nöfn greina og höfunda og jafn- vel útdrætti úr greinum. Fari menn t.d. inn á íslenska bókasafnskerfið Gegni og slái inn leitarorðið „Grýla" birtast auðvitað ýmiskonar jólasögur og þjóðsagnaefni en einnig titillinn „Grýla hjá Varmá í Ölfusi" eftir Guð- mund G. Bárðarson, fyrsta greinin sem skriíúð var í Náttúrufræðinginn. Setji menn hins vegar inn orðið „jökul- todda" kemur óðara upp síðasta grein síðasta heftis, „Jökultodda á íslandi" eftir Leif Símonarson. I erlendum gagnabönkum er Náttúrufræðinginn einnig að finna; t.d. eru 110 greinar úr honum á skrá hjá Georef sem segja má að sé einn mikilvægasti netmiðill jarð- fræðiheimilda. Fyrir nokkrum árum gerði Guðrún Pálsdóttir bókasafnsfræðingur merka könnun á því í hvaða fræðirit íslenskir vísindamenn vitnuðu mest í skrifum sínum. Af innlendum ritum sat Nátt- úrufræðingurinn öruggur í efsta sæti. Þrátt fyrir þetta verður ekki sagt að það sé offramboð á greinum til ritsins. Sannast sagna vantar alltaf efni enda eru margir um hituna - náttúrufræði, náttúrulýsingar og náttúruviðburðir eru vinsælt lesmál og það er bitist um góðar greinar á þessu sviði. Fyrir metnaðarfulla höfunda hefur Nátt- úrufræðingurinn þó ýmsa góða kosti fram yfir önnur rit, greinar þar hafa á sér gæðastimpil hinnar kröfuhörðu ritrýni, auðvelt er að nálgast þær því ritið er til á flestum söfnum og efni þess er skráð í mikilvæga gagnabanka. Benda má á að tímaritið er löngu orð- ið sígild heimild um náttúrufarsrann- sóknir á íslandi. Óhætt mun því að hvetja fræðimenn og áhugafólk til þess að skrifa í Náttúrufræðinginn, þeim skrifum er betur til haga haldið en víðast annars staðar og ætlað lengra líf. Árni Hjartarson formaður ritstjórnar 79
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.