Náttúrufræðingurinn - 2003, Blaðsíða 17
Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags
-38 -36 -34 -32 -30 -28 -26 -24 -22 -20 -18 -16 -14 -12 -10 -8 -6 -4 -2
-38 -36 -34 -32 -30 -28 -26 -24 -22 -20 -18 -16 -14 -12 -10 -8 -6 -4 -2
3. mynd. Hafstraumar við ísland samkvæmt mælingum með rekduflum sem fylgst er með frá gervitunglum. Heitir straumar rauðir,
kaldir straumar bláir og blandaðir straumar grænir (Héðinn Valdimarsson og Sv.A.M. 1999).
birtist 1945 mikil ritgerð eftir haf-
fræðinginn Alf Kiilerich um tiltæk
gögn í Kaupmannahöfn frá Norður-
hafi, allt norðan frá Svalbarða og
suður til íslands.
Því má skjóta inn hér að nýjustu
athuganir með svonefndum rekdufl-
um, sem fylgst var með frá gervi-
hnöttum 1995-1996, sýndu nokkuð
aðra mynd af hafstraumum fyrir
sunnan land (3. mynd). Skipting
straumsins að sunnan austur og
vestur með landinu kom í ljós, en
vestar beindu áhrif botnlögunar á
Reykjaneshrygg rekinu að hluta suð-
ur með hryggnum og síðan bæði í
rangsælis straum í Suðurdjúpi og í
yfirfall til vesturs yfir hrygginn í
Grænlandshaf. Svipuð mynd af
straumum hafði reyndar birst löiigu
áður, hjá Norðmanninum Fridtjof
Nansen (1912) og Þjóðverjanum Ge-
org Wiist (1928).
Að lokum skal getið danska haf-
fræðingsins Jens Smed (m.a. 1975),
sem var lengi haffræðingur Alþjóða-
hafrannsóknaráðsins í Kaupmanna-
höfn (4. mynd). Hann birti á löngum
ferli sínum (1947-1975) fjölda greina
um yfirborðshita sjávar frá mánuði
til mánaðar og ári til árs (1875-1972)
um allt norðanvert Norður-Atlants-
haf og þá einnig á íslenskum haf-
svæðum. Niðurstöður Smeds eru
grundvallarupplýsingar um breyt-
ingar á ástandi sjávar og veðurfar á
umræddum slóðum og sýna vel t.d.
hlýviðrisskeið frá því um 1920 til
4. mynd. Hin konunglega höl\ Charlottulundur fyrir norðan Kaupmannahöfn. Höllin
var aðsetur Alþjóðahafrannsóknaráðsins frá 1936 til 1980 og jafnframt setur dönsku
haf- og fiskirannsóknanna til þessa dags. Ljósm. Sv.A.M.
93