Náttúrufræðingurinn - 2003, Page 45
Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags
Samsett loftmynd af Skeiðarárjökli og Skeiðarársandi. Myndin er frá 1945 og mun verafyrsta loftmynd afpessu landsvæði. Hún sýnir
pvísandinn eins og henn leit út áður en mannshöndin fór að hafa áhrif á hann, sem var rauna ekki fyrr en með gerð vegar og brúa á
árunum fyrir 1974. fökullinn iiggur nálægt ystu jökulgörðum en hefur hopað mikið síðan petta var.
hans fylgdarlið var komið yfir. Með
því varð til helgisaga um Guð-
mund. En að öðru leyti virðist
þarna sagt frá Grænalónshlaupi,
sem hafa hlotið að koma á þessum
tíma ef jökullinn var komin fram
fyrir Grænalónsdalinn, en óvíst
hvað stór og hversu þétt. En það að
menn biðu þess austan við vötnin
að þau fjöruöu, sýnir að menn
þekktu hegðan hlaupsins. Þetta
hlaup er sagt hafa fallið í Lóma-
gnúpsá en ekki er víst að öll hlaup
úr Grænalóni hafi gert það. Það er
því vel hugsanlegt að austan Núps-
vatna hafi verið lítt gróinn sandur
langleiðina að farvegi Jökulsár á
Sandi, sem hefði þá eðlilega verið
kenndur við Lómagnúp og kallaður
Lómagnúpssandur.
Engin samtímaheimild er til um
hvernig umhorfs var austan Jök-
ulsár á Sandi á þeim tíma sem Guð-
mundur Arason var á ferðinni og
það er ekki fyrr en eftir 1700 sem til
eru skráðar sagnir um hvernig þar
hafi verið umhorfs þá, en samtíma-
heimildir eru til sem benda til að á
Skýringar:
1. Skeiðarárjökull
2. Skeiðará
3. Skaftafellsjökull
4. Svínafellsjökull
5. Morsárdalur
6. Skaftafcll
7. Svínafell
8. Háöldukvísl
9. Háalda
10. Harðaskriða
11. Sigurðarfit
12. Gígjukvísl
13. Gígjur (Sandgígjur)
14. Núpsvötn
15. Lómagnúpur
16. Básarákamef
17. Súlutindar
18. Núpsstaðarfjara
19. Skaftafellsfjara
20. Svínafellsfjara
21. Skaftafellsbrekkur
22. Virkisjökull
23. Sandfell
24. Færines
25. Jökulfell (bær)
26. Sæluhúsakvísl
þessuni slóðum hafi þeir atburðir
orðið sem rýrt hafi jörðina Jökulfell
og gætu hafa valdið meiri spjöllum.
Jökulfell var kirkjustaður sem stóð í
121