Náttúrufræðingurinn - 2003, Síða 76
N á ttúrufræðingurinn
an hátt athyglisverð, þótt telja verði
hæpið að efnaskiptaferlin hafi getað
náð að verða jafnmargslungin og
Wáchtersháuser heldur fram án
erfðaefnis og án verndandi himnu.
Það sem gefur tilgátu Wáchters-
háusers sérstakt aðdráttarafl er í
fyrsta lagi að samkvæmt henni var
lífið frumbjarga frá upphafi og alveg
óháð tilvist hinnar vafasömu frum-
súpu. I annan stað er margt í
kenningu hans sem á að vera hægt
að prófa með tilraunum. Morowitz
telur á hinn bóginn að fyrstu vísar
lífs hafi verið háðir umhverfinu um
lífræn efni og efnaskipti þeirra hafi
frá upphafi verið umlukin himnu.
Það er freistandi að sameina þessar
tvær efnaskiptakenningar í eina og
gera ráð fyrir að efnaskipti hafi byrj-
að líkt og Wáchtersháuser segir en
hafi fljótlega verið umlukin himnu
úr fitusýrum sem fyrir voru í um-
hverfinu. Slík blendingskenning
væri þó höfundum frumgerðanna
eflaust ekki að skapi. En hvemig
sem þessum efnaskiptakenningum
er hagrætt er skýring þeirra á upp-
mna lífs ófullkomin meðan þær geta
ekki skýrt uppruna erfðaefnis á
sannfærandi hátt.
Bilið milli lífvera og lífvana efnis
virðist vera svo breitt að það hljóta
að koma þær stundir að menn spyrji
sig hvort allt sé sem sýnist. Höfum
við misst af einhverju sem skiptir
sköpum fyrir skilning á tilurð lífs-
ins? Víst þurfum við að hafa augun
opin fyrir nýjum viðhorfum til
vandans, en eins og nú horfir virðist
líklegast að einungis miklar og
langvarandi rannsóknir muni þegar
fram líða stundir leiða til sannfær-
andi skýringar á uppmna lífs og
jafnvel gera mönnum kleift að
kveikja fmmstætt líf.
Eitt er það þó sem gæti skipt
sköpum fyrir skilning okkar á lífinu
og uppmna þess. Það væri ef lífver-
ur fyndust á einhverjum öðrum
hnetti í sólkerfinu, lífvemr sem til
hefðu orðið óháð lífverum jarðar.
Fundur slíkra lífvera mundi benda
til þess að líf sé ekki sjaldgæft fyrir-
bæri í alheiminum heldur sé kvikn-
un þess eðlilegt, náttúrlegt ferli við
ákveðin skilyrði. Enn fremur mundi
samanburður við öðmvísi líf vænt-
anlega auka skilning okkar á því
sem mestu máli skiptir fyrir líf og til-
urð þess í alheimi.
Hitt er svo annað mál hvort
mönnum líkar betur; að vita af al-
heimi morandi í alls konar lífi eða að
geta gert sér vonir um að líf jarðar sé
það eina í alheimi.
Heimildir
Bada, J.L. & Lazcano, A. 2002. Some like it hot, but not the first biomo-
lecules. Science 296. 1982-1983.
Braiser, M.D., Green, O.R., Jephcoat, A.P., Kleppe, A.K., Van Kranendonk,
M.J., Lindsay, J.F., Steele, A. & Grassineau, N.V. 2002. Questioning the
evidence for Earths oldest fossils. Nature 416. 76-81.
Brocks, J., Logan, G.A., Buick, R. & Summons, R.E. 1999. Archaean mo-
lecular fossils and the early rise of eukaryotes. Science 285.1033-1036.
Cody, D.G., Boctor, N.Z., Filley, T.R., Hazen, R.M., Scott, J.H., Sharma, A. &
Yoder, H.S. Jr. 2000. Primordial carbonylated iron-sulfur compounds
and the synthesis of pyruvate. Science 289.1337-1340.
Dyson, F. 1999. Origins of life, 2.útg. Cambridge University Press,
Cambridge. 100 bls.
Eigen, M., Gardiner, W., Schuster, P. & Winkler-Oswatitch, R. 1981. The
origin of genetic information. Sci. Am. 244. 88-118.
Fry, I. 2000. The emergence of life on Earth. Rutgers University Press, New
Brunswick, New Jersey. 327 bls.
Guðmundur Eggertsson. 2000. Kviknun lífs. Náttúrufræðingurinn 69.
167-176. .
Guerrier-Takada, C., Gardiner, K., Marsh, T., Pace, N. & Altman, S. 1983.
The RNA moiety of ribonuclease P is the catalytic subunit of the
enzyme. Cell 35. 849-857.
Haldane, J.B.S. 1929. The origin of life. The rationalist annual. Endurprent-
un í Origin of life, the central concept 1994 (ritstj. D.W. Deamer & G.R.
Fleischaker), bls. 73-81. Jones and Bartlett Publishers, Boston. 431 bls.
Joyce, G.F. 2002. The antiquity of RNA-based evolution. Science 418.
214-221.
Kruger, K., Grabowsky, P.J., Zaug, A.J., Sands J., Gottschling, D.E. & Cech,
T.R. 1982. Self-splicing RNA: Autoexcision and autocyclization of the
ribosomal RNA intervening sequence of Tetrahymena. Cell 31.147-157.
Lahav, N. 1999. Biogenesis. Theories of life's origin. Oxford University
Press, Oxford. 349 bls.
Lazcano, A. & Miller, S.L. 1999. The origin of metabolic pathways. J. Mol.
Evol. 49. 424-431.
Maden, B.E.H. 1995. No soup for starters? Autotrophy and the origins of
metabolism. Trends Biochem. Sci. 20. 337-341.
Miller, S.L. 1953. A production of amino acids under possible primitive
Earth conditions. Science 117. 528-529.
Miller, S.L. & Lazcano, A. 1995. The origin of life - did it occur at high
temperatures? J. Mol. Evol. 41. 689-692.
Miller, S.L. & Lazcano, L. 2002. Formation of the building blocks of life. Bls.
78-112 í: J.W. Schopf (ritstj.). Life's origin. The beginnings of biological
evolution. University of California Press, Berkeley. 208 bls.
Mojzsis, S.J., Arrhenius, G., McKeegan, K.D., Harrison, T.M., Nutman, A.P.
& Friend, C.R.L. 1996. Evidence for life on Earth before 3.800 million ye-
ars ago. Nature 384. 55-59.
Morowitz, H.J. 1992. Beginnings of cellular life. Yale University Press, New
Haven. 195 bls.
Morowitz, H.J., Heinz, B. & Deamer, D.W. 1988. The chemical logic of a
minimum protocell. Orig. Life Evol. Biosph. 18. 281-287.
Nisbet, E.G. & Sleep, N.H. 2001. The habitat and nature of early life. Nat-
ure 409. 1083-1091.
Oparin, A.I. 1924. Proiskhozhdenie zhinzny (Uppruni lífs). Ensk þýðing á
rússneska textanum í Origins of life, the central concept 1994 (ritstj.
D.W. Deamer & G.R. Fleischaker), bls. 31-71. Jones and Bartlett Publis-
hers, Boston. 431 bls.
Oparin, A.I. 1957. The origin of life on the Earth. Oliver and Boyd, Edin-
burgh. 495 bls.
Orgel, L.E. 1998. The origins of life - a review of facts and speculations.
Trends Biochem. Sci. 23. 491-495.
Orgel, L.E. 2000. Self-organizing biochemical cycles. Proc. Natl. Acad. Sci.
USA 97. 12503-12507.
Schopf, J.W. 1993. Microfossils of the early Archean Apex chert: new
evidence of the antiquity of life. Science 260. 640-646.
Schopf, J.W. 1999. Cradle of life. The discovery of Earth's earliest fossils.
Princeton University Press, Princeton, New Jersey. 367 bls.
Shapiro, R. 2000. A replicator was not involved in the origin of life. IUBMB
Life 49.173-176.
Wáchtersháuser, G. 1988. Before enzymes and templates: theory of surface
metabolism. Microbiol. Rev. 52. 452-484.
Wáchtersháuser, G. 1990. Evolution of the first metabolic cycles. Proc. Natl.
Acad. Sci. USA 87. 200-204.
Wáchtersháuser, G. 2000. Life as we don't know it. Science 289. 1307-1308.
Woese, C.R. 2002. On the evolution of cells. Proc. Natl. Acad. Sci. USA 99.
8742-8747.
Zubay, G. 2000. Origins of life on the Earth and in the cosmos, 2. útg.
Academic Press, New York. 564 bls.
UM HÖFUNDINN
Guðmundur Eggertsson (f. 1933) lauk magistersprófi í
erfðafræði frá Kaupmannahafnarháskóla 1958 og dokt-
orsprófi í örveruerfðafræði frá Yale-háskóla í Bandaríkj-
unum 1965. Hann var prófessor í líffræði við Háskóla
íslands frá 1969-2003. Guðmundur vinnur að rannsókn-
um á hitakærum örverum.
PÓSTFANG HÖFUNDAR
Guðmundur Eggertsson
Líffræðistofnun háskólans
Grensásvegi 12
IS-108 Reykjavík
gudmegg@hi.is
152