Náttúrufræðingurinn - 2003, Page 78
Náttúrufræðingurinn
innan sviga á eftir heiti þess. Á
eftir heiti bókar kemur síðan
nafn útgefanda og útgáfustað-
ur, en sé um tímarit að ræða
skal rita heiti þess óstytt ásamt
árgangi (og númeri tölublaðs,
sé þess þörf) sem og fyrstu og
síðustu blaðsíðutölu. Sé ekki
um ákveðinn höfund að ræða
skal skrá stofnun eða útgef-
anda, útgáfuár og útgáfustað.
Bíði tilvitnuð grein prentun-
ar skal þess getið. Um vefheim-
ildir gildir að sé um formlega
vefútgáfu að ræða gilda sömu
reglur og um prentaðar heim-
ildir, en rétt er að stilla almenn-
um tilvitnunum í heimasíður í
hóf og geta slóðarinnar og jafn-
vel dagsetningar í meginmáli
en ekki í heimildaskrá.
Um greinarmerkjasetningu
og annan frágang vísast til
uppsetningar á heimildaskrám
með greinum í þessu hefti
Náttúrufræðingsins. Sjá einnig
eftirfarandi dæmi:
1. Árni Einarsson, Hlynur Óskarsson
& Hafliði Hafliðason 1993.
Stratigraphy of fossil pigments and
Cladophora and its relationship
with tephra deposition in Lake
Mývatn, Iceland. Journal of
Paleolimnology 8.15-26.
2. Hallgrímur Vigfússon 1938. Fálki
gerist hræfugl. Náttúrufræðingur-
inn 8. 128.
3. Árni Einarsson, Jón S. Ólafsson,
Arnþór Garðarsson & Gerður Stef-
ánsdóttir 1994. Cladophora í Syðri-
flóa Mývatns. Umhverfisráðuneyt-
ið, fjölrit. 30 bls.
4. Lovísa Ásbjörnsdóttir & Hreggvið-
ur Norðdahl 1995. Götungar í sjáv-
arsetlögum við Mela á Skarðs-
strönd. í: Eyjar í Eldhafi (ritstj.
Björn Hróarsson, Dagur Jónsson og
Sigurður S. Jónsson). Gott mál,
Reykjavík. Bls. 117-131.
5. Arnþór Garðarsson & Árni Einars-
son 1991. Lífið á botni Mývatns.
Bls. 190-217 í: Náttúra Mývatns.
Ritstj. Arnþór Garðarsson & Árni
Einarsson. Hið íslenska náttúru-
fræðifélag, Reykjavík.
6. Leifur A. Símonarson, Petersen,
K.S. & Funder, S. 1998. Molluscan
palaeontology of the Pliocene-
Pleistocene Kap Kobenhavn
Formation, North Greenland.
Meddelelser om Gronland. Geo-
science 36.103 bls.
5. Töflur og myndir skulu fylgja
handriti á sérstökum blöðum
enda sé greinilega merkt í
handriti hvar þær eiga að
koma. Töflur skulu ekki vera
flóknari eða stærri en svo að
auðvelt sé að koma þeim fyrir á
prentaðri síðu. Töflur skal tölu-
setja í réttri töluröð; 1. tafla, 2.
tafla o.s.frv. Lögð er áhersla á
að gott myndefni fylgi greinum
en myndum má skila á tölvu-
tæku formi í samráði við rit-
stjóra. Vísa skal til allra mynda
í textanum og ætíð í réttri núm-
eraröð; 1. mynd, 2. mynd
o.s.frv. Töflum skal gefa stutt
og skýrt heiti á íslensku og
ensku ef við á og myndum skal
á sama hátt fylgja stuttur skýr-
ingartexti.
PRÓFARKIR
Höfundar fá síðupróförk til yfir-
lestrar. Athugasemdir skulu sendar
um hæl til ritstjórnar.
SÉRPRENT
Höfundar fá pdf-skrá (Acrobat-skrá)
af greinum sínum og 30 sérprent án
endurgjalds, en þurfa að greiða fyrir
viðbótareintök samkvæmt kostnaði.
154