Náttúrufræðingurinn - 1997, Qupperneq 4
FrEYSTEINN SIGURÐSSON, FORMAÐURHÍN:
Ritstjóraskifti hjá
NÁTTÚRUFRÆÐINGNUM
Ritstjóraskifti hafa orðið á Náttúrufræð
ingnum, tímariti Hins íslenska náttúrufræði-
félags. Sigmundur Einarsson, jarðfræðingur,
hefur látið af störfum en við ritstjóm hefur
tekið Alfheiður Ingadóttir, líffræðingur. Sig-
mundur hefur verið ritstjóri Náttúmfræð-
ingsins frá 1991 en verulegar breytingar hafa
orðið á tímaritinu og vinnslu þess í ritstjóratíð
hans. Ritið hefur verið fært meira í það horf
sem undirtitill þess kveður á um: „alþýðlegt
fræðslurit um náttúrufræði". Náttúmfræðin
hefur að undanfömu verið að kvíslast æ meira í
undirgreinar og sérgreinar og þröng sérfræði-
legt efni þeirra oft lítt aðgengilegt fyrir
almenning og aðra náttúmfræðinga. Því em
þess vegna takmörk sett hversu mikið af slíku
efni á heima í tímaritinu. Hins vegar er eftir
sem áður mikil þörf fyrir almennt náttúra-
fræðilegt efni og aðgengilegt efni úr sérgrein-
unum. Á þetta hefur verið lögð aukin áhersla
og hefur það verið hlutverk ritstjórans að koma
þeim breytingum í framkvæmd. Á þessum tíma
hefur vinnsla tímaritsins einnig breyst. Efni
ritsins er nú tölvuunnið að mestu undir prentun
í samræmi við hina almennu þróun á því sviði.
Þessi breyting hefur einnig verið á höndum
ritstjórans. Hvort tveggja hefur Sigmundur
leyst af hendi með prýði og atorku. Þakkar
stjóm HÍN honum fyrir afar ánægjulegt
samstarf og fyrir dugnað, útsjónarsemi og
ósérplægni við ritstjóm tímarits félagsins og
óskar honum alls hins besta á nýjum starfs-
vettvangi.
Fráfarandi ritstjóri var vorið 1996 kvaddur
til nýrra starfa i Umhverfisráðuneytinu. Stjórn
HÍN og ritstjóri veltu fyrir sér ýmsum kostum í
þessu máli en sá varð fyrir valinu að semja við
Náttúrafræðistofnun íslands að taka að sér
umsjón með útgáfu Náttúrufræðingsins. í júlí
1996 var svo undirritaður samningur milli HÍN
og Náttúrufræðistofnunar um þetta mál. Sam-
kvæmt þeim samningi tekur Náttúrafræðistofn-
un að sér umsjón með útgáfu Náttúrufræðings-
ins í samvinnu við ritstjóm og fagráð á vegum
félagsins. Til þeirra starfa ræður Náttúrafræði-
stofnun starfsmann í samráði við HÍN sem
ritstjóra fyrir Náttúrafræðinginn. Sá starfs-
maður sér einnig um ýmis önnur mál á vegum
Náttúrafræðistofnunar. Störf ritstjórans breyt-
ast ekki að öðra leyti og greiðslur fyrir rit-
stjómina til Náttúrufræðistofnunar verða svip-
aðar þeim sem rannu til ritstjóra áður.
Náttúrafræðistofnun auglýsti i júlí eftir rit-
stjóra og bárast á fjórða tug umsókna. Ur hópi
þeirra sem uppfylltu sett skilyrði um menntun
og reynslu varð Álfheiður Ingadóttir að lokum
fyrir valinu. Álfheiður er líffræðingur að mennt
og hefur komið á ýmsan hátt að náttúrafræði-
legum málum, auk reynslu af blaðamennsku og
þjóðfélagsmálum. Stjóm HÍN vill bjóða Álf-
heiði velkomna til starfa við ritstjóm Náttúra-
fræðingsins.
Af hálfú HIN hafa starfað útgáfuráð og
ritnefnd Náttúrafræðingsins, ritstjóra til halds
og trausts. Utgáfuráðið er til komið í
ritstjóratíð fráfarandi ritstjóra og hefur verið
honum til ráðgjafar um útgáfustefnu og efnis-
val en ritnefndin hefur fjallað um faglega
meðferð efnisins. Báðir hópamir vora tilnefnd-
ir samkvæmt samningi við ritstjóra. Nú er við-
semjandi annar en verkefnin þó lítið breytt.
Starfsemi þessarra nefnda hefur þróast nokkuð
undanfarin ár og er það, ásamt breyttum við-
semjanda, tilefni nafnbreytinga á útgáfuráði og
ritnefnd, sem nú heita ritstjórn og fagráð í
samræmi við störf þeirra. Hvort tveggja er
áfram tilnefnt af stjóm HÍN. Limir útgáfuráðs
vora allir reiðubúnir til starfa í ritstjóm og á
sama hátt limir ritnefndar i fagráði. Manna-
breytingar hafa því engar orðið og vill stjórn
HÍN þakka hlutaðeigandi fyrir störf þeirra
hingað til og þann velvilja að halda þeim áfram
fyrir tímarit félagsins. Að lokum vill stjórn
HÍN þakka Náttúrafræðistofnun íslands og for-
stjóra hennar, Jóni Gunnari Ottóssyni, fyrir
afar gott samstarf og samhug við þessar
breytingar á stöðu og starfi ritstjóra Náttúru-
fræðingsins.
114