Náttúrufræðingurinn - 1997, Page 9
frá fyrsta vetri en þá
eru affoll unga mest
og þeir fuglar sem þá
deyja finnast því
fæstir. Einnig er
líklegt að minni átt-
hagatryggð unga eigi
þátt í þessum mun á
aldurshópunum þar
sem obbinn af endur-
heimtum og álestrum
er frá Kvískerjum.
Aldur
Rjúpur eru ekki lang-
lífír fuglar eins og
sést ef við skoðum
endurheimtur og
álestra. Af 34 endur-
heimtum fuglum,
merktum sem ungar,
voru 76% frá fyrsta
ári (1. tafla). Meðal-
aldur þessara 34
fugla var 285 dagar
(miðað er við að fyrsti
dagur í lífi unganna,
klakdagurinn, sé 1.
júlí). Skömm ævi
rjúpna ætti ekki að
koma á óvart því
athuganir í Hrísey og
á Norðausturlandi
hafa sýnt að afföll eru
mjög mikil og á fyrsta
ári deyja 65 til 93%
fúglanna (Amþór
Garðarsson 1988,
Ólafur K. Nielsen
1995b). Elsti fugl sem
vitað er um á Kví-
skerjum er kvenfugl
sem merktur var sem
ungi 4. ágúst 1981 og
lesið var á 6. septem-
ber 1986, þá um það
bil fimrn ára og
tveggja mánaða
gamall.
4. mynd. Samanburður á rjúpnatalningum á Kvískerjum, í Hrísey á
Eyjafirði og á Norðausturlandi. Tölur fyrir Norðausturland eru samtala
karra á 6 talningasvæðum. Til að gera y-ásinn sambærilegan fyrir öll
svæðin vardeiltí allar raðimar með viðkomandi gildum fyrirvorið 1983.
- Comparison ofptarmigan numbers at Kvísker, Hrísey and NE-Iceland.
Figures for NE-Iceland are total number of cocks observed on 6 census
plots. To make they-axis comparable, the figures for 1983 were placed
at 1.
Slys -
Accidents
Fundinn
dauður-
Found
dead
Skotinn -
Shot
Afrán -
Predated
5. mynd. Endurheimtur Kvískerjarjúpna flokkaðar eftir dánarorsökum
eins og þær eru tilgreindar í skýrslum Náttúrufræðistofnunar. Flokkurinn
„Fundinn dauður“ á við fugla sem fmnast á víðavangi ogþar sem ekki var
hægt að slá neinu föstu um hvað hafi valdið dauða. - Recoveries ofRock
Ptarmigan banded at Kvísker and classified according to cause of death.
Based on recovery reports at the Icelandic Museum of Natural History.
“Found dead“ are birds that died of unknown causes.
119