Náttúrufræðingurinn

Årgang

Náttúrufræðingurinn - 1997, Side 32

Náttúrufræðingurinn - 1997, Side 32
ÍSLENSK JARÐFRÆÐI Á MARGMIÐLUNARDISKI íslensk jarðfræði Sigurður Davíðsson, 1996 Mál og menning, Reykjavík. íslensk jarðfræði eftir Sigurð Davíðsson er nafn á geisladiski sem kom út hjá Máli og menningu fyrir jólin 1996. Þetta er margmiðl- unardiskur því hann skilar efninu til notandans um tölvuskjá sem prentuðum texta ásamt skýr- ingarmyndum, ljósmyndum, teiknuðum hreyfí- myndum og stuttum kvikmyndum. Megnið af textanum er einnig hægt að hlusta á eins og hljóðbók, en vilji maður heldur tónlist í bak- grunninn þá stendur slíkt til boða, frumsamin stef og útsetningar eftir Claudio Puntin, svo og ýmis náttúruhljóð sem fylgja kvikmýndunum. Þetta er kennsludiskur ætlaður til notkunar í menntaskólum en er líka ágætur til uppriijunar og lærdóms fyrir fróðleiksfúsa alþýðu. Hann hentar vel fyrir allar betri heimilistölvur sem hafa hljóðkort. Um nokkurra ára skeið hefur heyrst að margmiðlunarformið sé það sem koma skal og ekki líði á löngu þar til flestar hand- og kennslubækur verði á þessu formi. Þróunin hefur þó orðið mun hægari en margir bjuggust við. Fyrsta bókin sem kom út á geisladiski hérlendis var íslandshandbókin. Hún kom á markað 1995. Og nú kemur þessi og er fyrsta íslenska „bókin“ sem beinlínis er samin fyrir margmiðlunarformið. Margmiðlunardiskur er í eðli sínu án upp- hafs og endis að öðru leyti en því að í byrjun birtist aðalvalmynd á skjánum, sem er gróft efnisyfirlit. Síðan er mönnum í sjálfsvald sett hvar þeir hefja efnisnámið, þ.e. lesturinn, hlustunina og áhorfíð. Vilji maður sjá allt sem diskurinn hefur að geyma er þó rökréttast að fylgja aðalvalmyndinni frá byrjun til enda. Byrjað er á grundvelli nútímajarðvísinda, innri gerð jarðar og landreki, síðan er rætt um möttulstróka, heita reiti og jarðskorpufleka og stöðu íslands í þessari heimsmynd. Síðar koma kaflar um eldsumbrot, mótun lands, jarð- skjálfta og jarðhita. Að lokum er svo próf, spurningar og svör, svo menn geti metið hversu vel þeim hafi tekist með lærdóminn. Efnistökin eru knöpp og skýr, textinn þjáll og upplestur Margrétar Gunnarsdóttur áheyri- legur. Það er helst að efnið sé of knappt. Oft fýsir mann að vita meira. Ég veiti því eftirtekt að viðbrögð fólks eru keimlík þegar það sér þennan disk í tölvunni. Það horfir á aðalvalmyndina en smellir síðan strax á kaflann um eldgos. Þá birtist nánari efnisskipan: Blandgos - Gos undir jökli - Dyngjugos - Sjávargos - Hraun. Án umhugsunar smella menn á gos undir jökli. Texti og skýringarmynd birtist. Þykkur jökulís liggur yfír eldvirkri sprungu. Boðið er upp á nánari myndskýringu og teiknimynd fer af stað sem sýnir hraunkviku brjótast upp á yfírborðið undir ísnum, bræðsluhólf myndast og móbergs- hryggur hleðst upp. Atburðarásin í Bárðar- bungugosinu 1996 birtist þama ljóslifandi. Það gos er að vísu ekki nefnt á nafn enda varð það eftir að diskurinn fór í vinnslu. Á skjánum eru sýnd öll helstu afbrigði gosa undir jökli: móbergshryggur sem nær ekki upp úr ísnum, fjall sem bræðir sig í gegn en nær þó ekki að gjósa hrauni og síðast er sýnt hvemig stapi eins og Herðubreið verður til. í textanum kemur Af ný/um bókum fyrir orðið þeytigos með rauðu letri. Ef smellt er á það kemur upp stutt kvikmynd í litlum ramma á skjánum, svipmyndir frá eldsumbrotum í Grímsvötnum 1983. Ef cinhver orð koma fyrir í textanum sem menn skilja ekki, t.d. bólstraberg, þá þarf bara að smella á orðskýringu og upp kemur spjald með stuttri útskýringu á fyrirbrigðinu. En þarna koma líka í ljós takmörk þessa geisladisks. Ekkert er minnst á jökulhlaup. Hámark umbrotanna sem allir eru með í huga er þeir skoða gos undir jökli vantar. En um það tjáir ekki að fást. Þetta er dæmi um eitt af fjölmörgum fyrir- brigðum sem lýst er á diskinum. Hafí menn meiri áhuga á ísöldinni eða jarðhitavinnslu eru ámóta skýringarkaflar um þau. Ég held að það sé óhætt að segja að vel hafí tekist til með þessa frumsmíð. Allt er skýrt og skorinort, grundvallaratriðin eru lögð upp á einfaldan hátt og án útúrdúra. Þetta er stuttur diskur og fljótnuminn en sá sem lærir það sem á honum er verður að teljast vel að sér í íslenskri jarðfræði. Ámi Hjartarson. 142
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108

x

Náttúrufræðingurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.