Náttúrufræðingurinn - 1997, Blaðsíða 45
■ ÚRSICURÐUR
SKIPULAGSSTJÓRA
RÍKISINS
Innan tíu vikna frá því mats-
skýrsla kemur til umfjöll-
unar til Skipulags ríkisins
skal skipulagsstjóri kveða
upp úrskurð. Úrskurðurinn
byggist á umfjöllun Skipu-
lagsins um matsskýrsluna,
þeim umsögnum sem leitað
hefur verið eftir, athuga-
semdum sem kunna að hafa
borist og áliti annarra
sérfróðra aðila sem leitað
hefur verið til. í úrskurði
sínum getur skipulagsstjóri:
-fallist á framkvæmd, með
eða án skilyrða, eða
-farið fram á ffekara mat á
umhverfisáhrifum.
Hafi framkvæmdinni verið
vísað í frekara mat metur
ffamkvæmdaraðili eða ráð-
gjafar hans sérstaklega þá
þætti sem tilteknir eru i
úrskurðinum. Framkvæmdin
er aftur tilkynnt til Skipulags
ríkisins, ofangreint ferli
endurtekið og í úrskurði
sínum getur skipulagsstjóri
þá:
4. mynd a) Fjara neðan við bæjarhúsin í Sandnesi á
Selströnd í Steingrímsfírði eins og hún leit út fyrir
vegaframkvæmdir. Ljósm. Eigendur Sandness 1994.
4. mynd b) Fjara neðan við bæjarhúsin í Sandnesi eftir
vegaframkvæmdir. Ljósm. Þóroddur F. Þóroddsson 1996.
- fallist á ffamkvæmd, með eða án skilyrða,
- gert kröfu um ffekari könnun einstakra
þátta eða
- lagst gegn ffamkvæmd.
Til að tryggja enn frekar réttláta meðferð
mála er öllum heimilt að kæra úrskurð
skipulagsstjóra til umhverfisráðherra að
loknu frummati og frekara mati. Það þarf
að gerast innan 4 vikna frá því úrskurður-
inn er kynntur og skal úrskurður ráðherra
liggja fyrir innan 8 vikna frá því kæra berst
honum.
■ REYNSLA AF MATl Á
UMHVERFISÁHRIFUM
Áhugi á umhverfísmálum hefur aukist á
undanfömum árum. Almenningur, fram-
kvæmdaraðilar, sérfræðingar og stjóm-
málamenn eru orðnir meðvitaðri en áður
um gildi umhverfísins. Ekki verður aftur
snúið frá því viðhorfí að nauðsynlegt sé að
taka aukið tillit til umhverfísins við
ákvarðanir.
Þeir aðilar sem staðið hafa að mati á
umhverfísáhrifum hafa gert sér ljóst að
matið eykur yfirsýn yfir framkvæmdir og
155