Náttúrufræðingurinn - 1997, Side 50
^ llíílídiin Óniai' llálldanai'Miii
««Inii ídui Inirbjariiaiilóllii'
NÝTT LÍFORÐASAFN
Ut er komið enskt-íslenskt Líforðasafn
í samantekt Háldanar Omars Hálfdan-
arsonar og Þuríðar Þorbjarnardóttur.
Líforðasafnið er byggt á Ensk-íslenskri
orðaskrá sem Hálfdan Ómar gaf út
1981 en hefurlengi verið ófáanleg.
í Líforðasafni eru um 8000 flettur af
hinum ýmsu sviðum líffræðinnnar, m.a. í
dýrafræði, erfðafræði, fósturfræði, frumu-
líffræði, grasafræði, lífeðlisfræði, lifefna-
fræði, ónæmisfræði, vistfræði og þroskun-
arfræði.
Líforðasafnið er ætlað öllum sem lesa á
ensku fræðilegan texta i líffræði og ætti að
geta orðið öllum nemendum á framhalds-
skóla- og háskólstigi, þýðendum sem og
ýmsum öðrum, notadrjúgt hjálpartæki.
Höfundar Líforðasafnsins eru báðir
líffræðingar og hafa um árabil starfað við
kennslu í menntaskólum en hafa auk þess
þýtt kennslubækur í líffræði. Hálfdan Ómar
hefúr auk þess m.a unnið að gerð Ensk-
íslenskrar skólaorðabókar og Islensku
alfræðiorðabókarinnar.
Líforóasafnið er í handhægu broti, 264 s.
að stærð. Útgefandi er Offsetfjölritun ehf.
/iÍiVs . . -___' •• : • . ' - • ^ '
Fréttir
X r
VEFSÍÐURUM
NÁTTÚRUVERND
„h ttp://www. ism enn t. is/vefír/n vvefur“
Þetta er slóð nýrra vefsíðna um
náttúruvernd sem opnuð var 1.
desember 1996.
Útgáfa Vefsíðnanna er samvinnuverkefni
Náttúruverndarráðs og gagnasmiðju
Kennaraháskóla Islands og var kostuð af
Friðlýsingarsjóði Náttúruverndarráðs.
Höfúndar eru Sigrún Helgadóttir, Sólrún
Harðardóttir og Torfí Hjartarson.
Vefsíðumar eru um 140 talsins og flestar
myndskreyttar. í inngangi er vitnað í
Snorra Sturluson og þjóðsögur til stað-
festingar því að náttúruvernd hefur verið til
frá ómunatíð. Þar koma til sögu tröllin Karl
og Kerling frá þjóðgarðinum í Jökulsár-
gljúfrum en þau koma víða við á síðunum.
Hafín er gerð kennsluleiðbeininga með
síðunum til að auðvelda kennurum að nota
efnið og hvetja til notkunar þess í skólum.
160