Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 1997, Page 59

Náttúrufræðingurinn - 1997, Page 59
Englandi, tveir á eynni Mön, einn á Suðureyjum við Skotland, einn á Fair Isle við Hjaltland og einn á Orkneyjum (Dymond o.fl. 1989, Rogers o.fl. 1994- 1996). Það vekur furðu að tegundin hefur enn sem komið er ekki fundist á megin- landi Evrópu, t.d. í Frakklandi. Hér á landi hafa sést níu fuglar. 1. Heimaey (flugvöllur), Vestm, 25. október 1964 (imm RM5583). Ólafur Sigurðsson. Greindur til undirtegundarinnar coronata af J.W. Aldrich. 2. Steinadalur í Suðursveit, A-Skaft, 10. okt- óber 1976 (d? RM6381). Kristinn H. Skarp- héðinsson o.fl. 3. Núpsstaður í Fljótshverfi, V-Skaft, 11. okt- óber 1976 (RM6382). Ingólfur Guðnason, Kristinn H. Skarphéðinsson, Ólafur K. Niel- sen og Skarphéðinn Þórisson. 4. Heimaey (Klauf), Vestm, 13. október 1976 (einkasafn). Sbr. Ingi Sigurjónsson. 5. Heimaey (Stórhöfði), Vestm, tvær 26. sept- ember 1980. - GP & KHS (1983). 6. Hafnir, Gull, 1. októbcr 1989 (RM10191). - GP, GÞ & EÓ (1992). 7. Þorbjöm við Grindavík, Gull, 13. október 1991.-GP, GÞ & EÓ (1993). 8. Staður í Grindavík, Gull, 25. september 1993 (imm RM10851). - GÞ, GP & EÓ (1995). Af skríkjum hefur krúnuskríkja sést oftast hér á landi. Eins og á Bretlands- eyjum hafa flestar sést hér í október. Fuglar hafa þó sést nokkru fyrr, þ.e. einn í Grindavík 25. september árið 1993 (það ár sást einn skömmu síðar á írlandi) og tveir fuglar saman í Vestmannaeyjum 26. sept- ember árið 1980 (en þá sást tegundin ekki á Bretlandseyjum). Árið 1976 sáust þrír fuglar dagana 10.-13. október. Þá sáust hins vegar tveir í sama mánuði á Bret landseyjum, á suðvesturodda Irlands (7. október) og eynni Mön (26. október). Rákaskríkja (Dendroica striata) Rákaskríkja (9. mynd) er mjög norðlæg tegund í Ameríku og verpur allt norður að skógarmörkum frá Beringssundi í vestri lil Labrador og Nýfundnalands í austri. Hún nær aðeins suður í norðaustanverð Banda- 9. mynd. Rákaskríkja (Dendroica striata). Ljósm./photo R. Chittenden/Rare Bird Photographic Library. ríkin. Hún flýgur alla leið til S-Ameríku til vetrardvalar, en vetrarstöðvar ná um norð- anverða suðurálfúna allt til austanverðrar Brasilíu. Hún stundar því einstaklega langt farflug miðað við aðrar skríkjur. Farleiðir liggja um Flórída og Vestur- Indíur. Greniskógar norðursins eru kjör- lcndi tegundarinnar. Hún gerir sér hreiður neðarlega í grenitrjánum, jafnvel á jörðu niðri á nyrstu varpslóðum. Ætla mætti að rákaskríkja sé líklegri en aðrar skríkjur til að hrekjast austur yfir Atlantshaf. Eins og fyrr greinir fer allur fjöldinn um Flórída til vetrarstöðva og lendir þar í brautum lægða og fellibylja. Auk þess má vænta þess að tegund með jafnmikið flugþol og rákaskríkja fari nokkuð létt með að halda sér á flugi til Evrópu. Hún er reyndar í 4. sæti á lista Robbins (1980), með stuðulinn 6,02. Á Grænlandi hafa sést átta rákaskríkjur (sjö tilvik), ein sumarið 1853, ljórar í október 1911, ein i september 1919, ein í október 1951 og ein vorið 1984 (Boertmann 1994). Rákaskríkja er langalgengasta skríkjan á Bretlandseyjum. Sú fyrsta sást reyndar ekki fyrr en árið 1968 en til ársins 1995 höfðu sést þar 34 fuglar. Hennar hefur aðeins orðið vart að haustlagi, einn fugl sást 18. september, einn 10.-20. desember en allir hinir á tímabilinu frá 30. septem- ber til 29. október. Allar nema þrjár hafa fundist á suðvestanverðum eyjunum, þar af 169
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.