Náttúrufræðingurinn - 1997, Page 82
10. mynd. Mikið ummyndaður hraunlagastafli í Lónsöræfum. Miðja hvers hraunlags
myndar brík en í gjallkarganum á milli virðast allar frumsteindir svo gott sem horfnar og
ummyndunarsteindir komnar í staðinn. Vatn, sem er aðalhvatinn að ummyndun, á mun
betri aðgang að berginu í blöðróttum gjallkarganum en í heilsteyptum miðhluta
hraunlaganna og skýrir það dreifingu ummyndunarinnar. Græni liturinn á ummyndaða
berginu bendir til þess að það sé auðugt af klóríti. Mynd: Stefán Amórsson.
epídót. Seólítar eru yfírleitt nefndir geisla-
steinar. Það er óheppilegt nafn þar sem
aðeins sumar tegundir seólíta mynda
geislalaga kristalknippi. Því er erlenda
orðið seólíti notað hér með íslenskri
stafsetningu.
Af kvarssteindum eru til mörg afbrigði
sem greinast að á formi og lit, svo sem
kvars, jaspis og ametýst. Sjáist kristallar er
talað um kvars, annars um kalsedón eða
ópal. Kvarskristallar eru stundum nefndir
bergkristall. Það orð er óþarft. Litur í
kvarssteindum stafar af ýmsum aðskota-
efnum. Ef kísilsteindir eru ókristallaðar
nefnast þær með réttu ópal. Lengi var talið
að kalsedón (glerhallur) væri samsafn ör-
smárra kvarskristalla, þ.e.a.s. kristallað
efni þótt ekki mætti greina kristallana með
berum augum eða lúpu, ekki einu sinni í
smásjá. Nýlegar rannsóknir benda til þess
að kalsedón sé blanda tveggja kísilsteinda,
kvars annars vegar og móganíts hins vegar
192
(Flörke o.fl. 1976; Sigurður R. Gíslason
o.fl. 1993).
Á íslandi hefur fundist alls 21 mis-
munandi tegund seólíta, en aðeins 7 þeirra
geta talist algengar, þ.e. heulandít, stilbít,
skólesít, mesólít, tomsónít, kabasít og
analsím. Ef kristallarnir eru smáir verða
þeir ekki greindir nema með röntgen-
endurkastsmælingum. Oft eru kristallar
seólíta þó nógu stórir til að greina þá með
lúpu eða berum augum. Slík greining
byggist fyrst og fremst á lögun kristalla en
einnig á lit og gljáa.
Seólítum hefur verið skipt í þrjá flokka
eftir lögun, í þráðlaga, plötulaga og kubbs-
laga kristalla. Af 7 algengustu seólítunum
tilheyra 3 þráðlaga flokknum (skólesít,
mesólít og tomsónít), 2 plötulaga flokkn-
um (heulandít og stilbít) og 2 þeim
kubbslaga (kabasít og analsím).
Efnasamsetning seólíta er sambærileg
við efnasamsetningu feldspata. Báðir þessir
»