Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 1997, Page 83

Náttúrufræðingurinn - 1997, Page 83
11. mynd. Seólítabelti George Walkers á Austíjörðum. Byggt á grein Knstjáns Sæmundssonar & lngvars B. Friðleifssonar (1980). steindaflokkar eru ál-silíköt af kalsíum, natríum og kalíum, en seólítarnir innihalda auk þess vatn. Vatnsinnihaldið er breytilegt, svo og kísilinnihaldið. Til- hneiging er til þess að þeir seólítar sem myndast við lægstan hita innihaldi mest vatn, en þeir sem myndast við hæstan liita minnst. Kísilsnauða seólíta er aðallega að finna í ólivín-basalti, en það er tiltölulega kísilsnautt af basalti að vera. Hins vegar finnast kísilríkir seólítar í þóleíti, en það er tiltölulega kísilríkt basalt. Kortlagning á dreifingu seólíta í bergi á sunnanverðum Austíjörðum leiddi í ljós nokkra lagskiptingu, þótt ekki sé hún glögg. Walker (1960), sem kortlagði dreifingu seólítanna, aðgreindi 3 seólita- belti (11. mynd). Þeim hallar örfáar gráður í vestnorðvestlæga stefnu, en jarðlögunum meira, eða um 10°. Því skera seólítabeltin jarðlögin. Magn seólíta og stærð kristalla vex i heildina með dýpi. Talið er að aukin kristallastærð og aukið magn seólíta endurspegli vaxandi hita með dýpi í hraunlagastaflanum á Austfjörðum. Athuganir Walkers leiddu í Ijós að tíðni bergganga í hraunlagastaflanum á Austtjörðum minnkar með hæð. Hann taldi gangana aðfærsluæðar gos- sprungna. Með því að framlengja gangaþéttleikann upp á við, þar til hann varð núll, áætlaði Walker hversu hátt upphaflegt yfirborð hraunlagastaflans hefði legið yfir fjöllunum. Niðurstaðan var sú að um 500 metrar hefðu rofist ofan af upphaflegum hraunlagastafla. Með þessu móti áætlaði Walker hve djúpt hefði verið niður á hin ýrnsu seó- lítabelti frá upphaflegu yfirborði. Niður- stöður Ágústs Guðmundssonar (1996) benda til þess að túlkun Walkers á gangaþéttleika standist ekki fyllilega. Gangar eru ekki alltaf gamlar aðfærslu- æðar gossprungna. í Kröflueldum 1975- 84 rann kvika oft frá kvikuhólfi í rótum Kröflueldstöðvarinnar út eftir sprungum og myndaði þvi ganga, án þess að hún næði til yfirborðs. Á Vestfjörðum og á Tröllaskaga er allur efri hluti fjallanna úr ferskum hraunum og óholufylltum og seólíta- beltin þar liggja dýpra en á Austfjörðum. Þetta stafar af því að ekki hefur rofist eins mikið ofan af hraunlagastaflanum á þessum svæðum og á Austljörðum. 193
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.