Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 1997, Page 94

Náttúrufræðingurinn - 1997, Page 94
mosaættina (Bryaceae) kom út 1995 en tegundir hennar eru almennt taldar meðal hinna erfiðustu í nafngreiningu. Samkvæmt yfirliti um verkið sem birt er í þessu hefti hefur nú verið fjallað um 29 ættir blaðmosa (Musci) i þessu ritsafni og eru aðeins 12 blaðmosaættir eftir, auk lifurmosanna. Mér telst svo til að þar með sé búið að rita um ca. 320 tegundir af um 550 sem eiga að hafa fundist hér á landi og er verkið þvi meira en hálfnað. Af blaðmosum eru aðeins eftir um 100 tegundir. Uppsetning allra hefta mosaflórunnar er mjög mikið samræmd. Lýst er mjög nákvæmlega öllum flokkunarstigum, ætt- bálkum, ættum, ættkvíslum og tegundum. Greiningarlyklar eru fyrir öll flokkunar- stigin. Hver tegundarlýsing tekur að jafnaði heila síðu í ritinu og sést best af því hversu ítarlegar þær eru. Þær eru allar frumsamdar af höfundi, eftir eigin skoðun á íslenskum eintökum. Ef höfundur hefur ekki fengið eintak af viðkomandi tegund í hendur er henni sleppt í þessu riti, enda þótt víst sé talið að hún vaxi hérlendis. Verður það að skoðast sem nokkur takmörkun á þessu annars ágæta riti, en þar mun þó aðeins vera um að ræða fáeina tugi tegunda. (Voru um 40 árið 1980, skv. mosaskrá B. J. 1983.) Teikningar af tegundinni og hinum ýmsu smásæju einkennum hennar taka sömuleiðis heila blaðsíðu. Þetta eru mestmegnis strikteikningar, teiknaðar fríhendis með túskpenna, og veit ég ekki til að höfundur þeirra hafi notað neins konar hjálpargögn við það, önnur en pennann, enda hefur hann aldrei hrifíst mjög af tækninni. Að jafnaði eru 10-20 smámyndir af hverri tegund (stöku sinnum allt að 30). Flestar mosategundir eru greindar eftir lögun og frumugerð blaðanna og er þvi lögð mikil áhersla á að teikningamar sýni allan breytileika þeirra hvað þetta snertir, svo og lögun gróhirslna (bauka) og bauktanna, ef slík aldin koma fyrir hér. Teikningarnar eru að mínu áliti mjög vel gerðar og koma því vel til skila sem þeim er ætlað að sýna. Þær eru allar í mælikvarða sem sýndur er á hverri mynd. Á milli er svo skotið inn útbreiðslu- kortum fyrir hverja tegund þar sem þekkt útbreiðsla er sýnd með punktum, skv. ákveðnu reitakerfí (10 x 10 km), sem Bergþór og Hörður Kristinsson mótuðu í kringum 1970. Þegar skoðuð er útbreiðsla algengustu tegundanna, svo sem gambur- mosa (hraungambra), sést að ekki vantar mikið á að landið hafí verið „dekkað“ en helst virðist vanta upplýsingar frá NA- hluta landsins og miðhálendinu. Varðandi útbreiðsluna finnst mér að gjarnan hefði mátt geta um hæðarmörk hennar yfír sjávarmál því töluverðar upplýsingar hljóta að vera til um það efni. Af ný/um bókum Eins og sjá má af þessari frásögn er hér um að ræða mjög vandaða og ítarlega mosaflóru sem fyllilega stenst samanburð við það besta sem gert hefur verið á því sviði í heiminum. Á Norðurlöndum þekki ég engar jafn ítarlegar mosaflórur og varla í NV-Evrópu. Ljóst er hins vegar að mosaflóra Bergþórs hentar ekki fyrir byrjendur í fræðigreininni. Til þess er hún allt of stór og viðamikil og gefur ekki nógu gott yfirlit um mosakerfíð, auk þess sem þar vantar ýmsar almennar upplýsingar um mosa og helstu greiningareinkenni þeirra, hvemig þeim verður safnað og hvemig sé unnið að þvi að nafngreina þá. Fyrir þá sem þegar hafa aflað sér nokkurrar mosaþekkingar og geta t.d. séð i fljótu bragði til hvaða ættar eða ættkvíslar mosinn sem þeir hafa í hendinni heyrir er þessi mosaflóra ómetanlegt hjálpargagn við tegundargreininguna. Ýmsum mun þykja það skrítið að fræðirit sem þetta skuli vera ritað á íslenska tungu þar sem notendahópur þcss hlýtur að vera sáralítill. Þetta gefur henni þó um leið sérstakt gildi og gerir hana að meira brautryðjendaverki en ella því þar með hefur höfundur orðið að mynda og móta á íslensku öll fræðiorð sem notuð eru við lýsingu sem þessa. Má víst segja að þar 204
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.