Náttúrufræðingurinn - 1981, Blaðsíða 209
henni rennsli eingöngu úr efra kerfi, og
mældist þá vanalegur boginn vinnslu-
ferill. Auk þess var hægt að breyta
rennslinu þannig að bæði efra og neðra
kerfi væru virk í rennslinu. Við þannig
aðstæður gaf holan mjög beinan
vinnsluferil.
Þessar aðstæður voru allar taldar
styrkja hugmyndina um tvö kerfi, og að
neðra kerfið væri í suðu. Þegar hola blæs
á neðra kerfi er suða alveg niður í botn
holunnar og mesta þrýstifallið verður
frá jarðhitageyminum inn í holuna, en
tiltölulega lítið þrýstifall upp holuna.
Þessar aðstæður valda því að breytingar
á þrýstingi við holutopp hafa lítil áhrif á
rennsli inn í holuna. Þess vegna breytist
rennslið úr slíkum holum lítið þó þrýst-
ingi sé breytt við holutopp. Þrýstingur á
2 km dýpi í jarðhitakerfinu er um 150
bör, en þrýstingur í blásandi holu varla
meiri en 20—30 bör á sama dýpi.
Þrýstifall frá jarðhitageymi inn í holur í
Kröflu er því allt að 120 bör, en þrýsti-
fall eftir holunum sjálfum ekki nema
5 —10 bör. Breyting á holutoppsþrýst-
ingi um nokkur bör hefur því mjög
smávægileg áhrif á þrýstifallið frá jarð-
hitageyminum inn í holuna, og hefur
þannig lítil áhrif á rennsli úr holunni.
LÍKAN AF
JARÐHITAKERFINU
Hér að framan hefur verið stiklað á
stóru um helstu niðurstöður djúprann-
sókna og minnst á helstu atriði sem mið
var tekið af við gerð á líkani af svæðinu.
Hér á eftir eru helstu drættir líkansins
dregnir fram, og eiginleikum jarðhita-
kerfisins lýst með hliðsjón af þessu
líkani.
Almennt má segja að tilgangurinn
með því að búa til líkan af einhverju
fyrirbæri sé að þjappa saman í einfalda
mynd mörgum óháðum mælistærðum á
þann hátt að yfirsýn fáist um fyrirbærið.
Líkön eru alla jafna talin því betri sem
þau eru einfaldari og auðskiljanlegri.
Alþekkt einfalt líkan af náttúrulegu
fyrirbæri er t. d. uppástunga Galileis að
pláneturnar ferðuðust eftir hringlaga
brautum umhverfis sólina. Þó að menn
hafi seinna endurbætt þetta líkan, eru
megindrættir þess enn í fullu gildi, fyrst
og fremst vegna þess hví líkanið er ein-
falt og auðskiljanlegt.
Líkön eru í sjálfu sér hvorki rétt eða
röng, heldur lýsa þau fyrirbærum miðað
við þekkingu á hverjum tima. Ein
mæliniðurstaða getur kippt stoðum
undan líkani og kallað á endurskoðun.
Kosturinn við einfalt líkan er hins vegar
sá, að auðvelt er að sjá samband milli
ýmissa þátta í kerfinu, og jafnvel hægt
að segja fyrir um hvað gerist í kerfinu.
Fyrirliggjandi líkan af jarðhitakerf-
inu í Kröflu er tiltölulega gróft og er
ekki ætlað að lýsa öðru en megindrátt-
um í uppbyggingu kerfisins. Þó er ekki
vitað um neinar mæliniðurstöður, sem
eru í beinni andstöðu við líkanið. Lík-
anið skýrir margvíslegar niðurstöður
djúprannsókna og er því eðlilegt að nota
það við lýsingu á jarðhitakerfinu. A það
ber þó að benda að líkanið er byggt á
niðurstöðum frá borunum í tiltölulega
lítinn hluta jarðhitasvæðisins, og hlýtur
því að koma að þvi að endurbæta þurfi
líkanið þegar vitneskja kemur fram frá
borunum í aðra hluta svæðisins, svo sem
suðurhlíðar Kröflu.
Helstu drœttir líkansins
Hér að framan var drepið á ýmis
meginatriði sem lágu til grundvallar við
351