Náttúrufræðingurinn - 1958, Qupperneq 17
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN
71
fugl, er mér sýndist líkastur þúfutittling. Fjórir svanir höfðu verið
þar dagana á undan, sögðu Norðmenn okkur.
Skordýralífið er mjög fátæklegt. Urðum við engra skordýra var-
ir meðan við dvöldumst þar, ekki einu sinni maðkaflugu. Hefði
þó mátt vænta hennar við hræ af smáhveli, sem þar var rekið og
bæði refir og fuglar liöfðu gert sér gott af.
Fjörur allar virtust mér óvenjusnauðar af öllum lifandi minjum.
Er þess og að gæta, að víðast þar sem ég fór um var sandfjara, svo
að ekki var um þörunga að ræða. Þrátt fyrir mikla leit, fann ég
þar einungis fi skeljategundir og- 2 tegundir kuðunga. í Hollendinga-
vík var rekið allmikið af krabbadýrshömum, sem helzt líktust smá-
vöxnum rækjum. Eitt hrognakerfi úr grásleppu fann ég. Annars er
þess að gæta, að fáir ætilegir hlutir fá lengi að liggja kyrrir í fjörun-
um fyrir refunum, sem leita þar mjög að æti, eins og slóðir þeirra
sýndu, en þær líktust helzt fjárslóðum í beitilandi að vetri.
Sögulegt yfirlit.
í Landnámu segir, að fjögurra dægra sigling sé frá Langanesi til
Svalbarða í hafsbotn. Hafa sumir fræðimenn talið, að þar sé átt
við Jan Mayen, og er það ekki ósennilegt eftir vegalengd. Ef það
er rétt, þá hafa forfeður okkar þekkt eyna, og er það raunar ekki
undarlegt, svo vítt um, sem eygja má Bjarnarfjall. Af fornum landa-
bréfum þykjast menn og sjá, að einhver eyja hafi verið kunn á
þessum slóðum fyrr á öldum. En hvað sem því líður var eyjan
samt gleymd öllum, unz Hollendingurinn Jan Jacobsz May fann
hana árið 1614. Ber eyjan síðan nafn hans, þótt stundum væri hún
kölluð annað fyrr á tímum. Um líkt leyti og Jan May fann eyna
munu enskir sjófarendur hafa komið þangað. Þeir, er fyrstir fundu
eyna voru hvalveiðamenn. Þá var gnótt hvala á þessum slóðum,
enda var brátt tekið að stunda þarna hvalveiðar af kappi. Eitt-
hvað stunduðu Englendingar þær veiðai', en aðallega voru þær
reknar af Hollendingum. Höfðu Hollendingar bækistöðvar í
víkunum vestan og norðan á Suðurey, en einnig í Rekavík. Aðal-
stöðin var í Rostungsvog. Sjást þar enn nokkrar minjar, húsarústir,
tígulsteinahrúgur, hvalbein og brot úr ýmsum smámunum. En
mjög eru þessar minjar eyddar, enda var gengið nærri öllu nvti-
legu þar á stríðsárunum.